Þessi dægrin er hægt að finna flug út til Evrópu og heim aftur út þetta ár allt niður í 20 þúsund krónur sé farangur skorinn við nögl. Sé því tilboði rúllað saman við annað tilboð sem í boði er nú getur fólk dvalið vikustund á fínasta stað á Algarve í Portúgal fyrrihluta vetrar undir 80 þúsund krónum.
Breska ferðaskrifstofan Luxury Holiday Collection er að slá verulega af ferðum sínum til Albufeira á Algarve í allan vetur frá október og þar gist í fimm stjörnu stúdíóíbúð. Allt er innifalið; matur, drykkir innlendir og snakk allt.
Fyrir utan að þurfa ekki að opna veskið neitt frekar en fólk vill er eiginlega betra að okkar mati að Algarve að vetrarlagi er allt annar hlutur en Algarve að sumarlagi.
Vissulega eru færri staðir opnir og hitastigið lægra en þannig færist líka hefðbundið portúgalskt yfirbragð yfir Albufeira og engin bið er að komast á bestu staðina. Hitastigið líka þægilegt og enginn þarf að þverra svita á fimm mínútna fresti. Síðast en ekki síst lækkar verðlag almennt frá því sem gerist að sumri til.








