Allir ferðalangar í Tælandi þurfa mjög að hafa varann á sér áfram þó herstjórnin í landinu hafi í gær afnumið útgöngubann á þremur vinsælustu ferðamannastöðum landsins. Landið er sagt púðurtunna og kvikni í því púðri er ferðamönnum hætta búin um leið.

Áfram skal gæta fyllstu varúðar á ferð um Tæland að mati helstu ríkja heims.

Áfram skal gæta fyllstu varúðar á ferð um Tæland að mati helstu ríkja heims.

Um nokkurra daga skeið hefur ríkt útgöngubann á vissum tímum sólarhringsins víða um landið og þar á meðal í Phuket, Pattaya og Koh Samui sem eru allir meðal vinsælustu áfangastaða ferðafólks í landinu. Því banni hefur nú verið aflétt en það hefur ekki þótt nóg til að stjórnvöld erlendra ríkja lyfti ferðaviðvörunum sínum til landsins.

Ferðafólk í landinu er hvatt til að fylgjast grannt með samfélagsmiðlum og ekki síður forðast stærri samkomur heimamanna eins og heitan eldinn ef vera kynni að upp úr syði.

Verði það raunin er hætt við að fræg bros heimamanna í garð útlendinga hverfi eins og dögg fyrir sólu.