Hinar þekktu íbúða- og hótelbókunarvélar Airbnb.com, Booking.com og Tripadvisor.com brjóta alþjóðalög að mati heimastjórnar Palestínu en allir þrír aðilar leigja út herbergi í íbúðum eða gististöðum á svæðum sem Ísraelar hafa ólöglega sölsað undir sig á Vesturbakkanum.
Þessar ásakanir heimastjórnarinnar þykja réttmætar að mati þeirra sem til þekkja en herferð gegn Tripadvisor og Booking hefur verið í gangi um nokkurt skeið vegna þessa. Nú hefur hin sívinsæla íbúðaleiga Airbnb bæst í hópinn eins og Washington Post greinir frá.
Þar kemur fram að ísraelskt landtökufólk gerði sér svo mikinn mat úr því að Palestínumenn væru að kvarta yfir íbúðaleigum í ólöglegum byggðum að það snarfjölgaði íbúðum til leigu á skrá Airbnb í kjölfarið.
Smekklegt eða hitt þó heldur. Þess má geta að Icelandair, Wow Air og Dohop bjóða öll upp á bókunarþjónustu Booking.com ef þér þykir við hæfi að eiga viðskipti við slíka aðila.








