Samkvæmt biblíunni er gredda og grægði hvers kyns ávísun á lyftuferð niður til helvítis að lífinu loknu (biðjum að heilsa Pálma Haraldssyni.) Þar tekið á móti þér með heitum töngum og eldglæringum eftir því sem við komumst næst. Kannski er það ástæða þess að fagra Ísland á engan fulltrúa á lista Airbnb yfir heitustu staðinu á næsta ári.

Milwaukee-ríki í Bandaríkjunum er staður númer eitt, tvö og þrjú hjá Airbnb á næsta ári.
Svo virðist sem vegur landsins okkar fari þverrandi. Enginn þekktur eða vinsæll erlendur ferðamiðill er lengur með Gullfoss, Geysi, Húsavík eða Melrakkasléttu á sínum topplistum. Það góðu heilli. Grægði ferðaþjónustuaðila hérlendis löngu komin úr fyrir mörk þess eðlilega og tími til kominn að erlendir ferðablaðamenn kveiktu á þeirri peru.
En það er sannarlega risaplús við slíka lista þekktra erlendra fjölmiðla. Plúsinn að vita hvert Á EKKI AÐ FARA Á NÆSTA ÁRI!
Einn áreiðanlegur miðill er íbúðaleigan Airbnb sem hefur á skömmum tíma orðið einn helsti ferðamannastaður heims. Þeir birta sína árslista eins og aðrir og merkilegt nokk á Íslandið góða engan fulltrúa á næsta ári.
Þetta eru toppstaðir heimsóknar 2020 samkvæmt Airbnb:
- Milwaukee, Bandaríkin
- Bilbao, Spánn
- Búriram, Tæland
- Sunbury, Ástralíu
- Rúmenía
- Xi’an, Kína
- Eugene, Bandaríkin
- Lúxemborg
- Guadalajara, Mexíkó
- Vanuatu
- Cali, Kólombía
- Cape Canaveral, Bandaríkin
- Aberdeen, Skotland
- Courtenay, Kanada
- Ubatuba, Brasilíu
- Les Continames, Frakkland
- Tókíó, Japan
- Kerala, Indland
- Malindi, Kenía
- Maastricht, Holland.
Þá vitum við upp á hár hvaða staði er best að forðast á næsta ári. Nema yfirgnæfandi fjöldi ferðamanna sé þitt líf og yndi 😉







