Öll eigum við okkar góðu og slæmu daga og það á líka við um flugfélagið Wow Air sem fær töluvert á baukinn á samfélagsmiðlum þennan daginn.

Brosandi vélar en oft geta farþegar Wow Air ekki sagt það sama.

Verulegar tafir og seinkanir hafa orðið á áætlun Wow Air síðasta sólarhringinn eða svo. Það ekki einsdæmi í flugheimum en margra klukkustunda bið á leiðinlegum flugvöllum án allra upplýsinga vill gjarnan hafa miður góð áhrif á ferðafólk eins og skjáskotin hér að neðan bera með sér.

Hvergi er að finna neinar upplýsingar um hvers vegna nánast allar vélar Wow Air hafa verið langt á eftir áætlun síðasta sólarhring. Líklegt má þó telja að það sé sama ástæða og síðast og þarsíðast og þarþarsíðast og þarþarþarsíðast sem er að Wow Air keyrir flota sinn svo hart að eitt einasta óhapp eða alvarleg töf hefur vaxandi og slæm keðjuverkandi áhrif á öll flug félagsins.

Kannski Skúli Mogensen, sé honum annt um orðspor Wow Air, ætti að hætta að taka tíma frá til að pósa í flugstjórnarklefa sem viðskiptamaður ársins hjá Fréttablaði Jóns Ásgeirs og nota tímann fremur til að koma til móts við viðskiptavini sína.

Nema auðvitað stefnan sé að Wow Air verði hið nýja Ryanair…

Þú ert ekki að eignast neina nýja vini þennan daginn Skúli Mogensen. Kannski hefurðu gleymt þessu mikilvæga sem litli frelsarinn hafði í hávegum: komdu fram við fólk eins og þú vilt að það komi fram við þig… Það er jú einhvern veginn erfitt að sjá Skúla Mogensen fyrir sér bíða sallarólegan á flugvelli í þrjár til tuttugu stundir og brosa sínu breiðasta yfir 1500 króna matarmiða…