Nú verður einhver þarna úti að leiðrétta okkur ef ástæða þykir til. En að frátöldum sértilboðum Icelandair, eins og hraðtilboðum, þá munum við ekki eftir því að verð per sæti í tilteknu flugi flugfélagsins geti líka LÆKKAÐ eftir því sem nær dregur.

Svo Icelandair hækkar og lækkar verð eftir geðþótta og eftirspurn. Hvers vegna hefur þetta farið fram hjá Íslendingum?

Við liggur að það sé jafn sársaukafullt að finna sæti í sama farrými, sama daginn í sama flugi á lægra verði en þú varst búin/n að greiða fyrir sólarhring áður og að láta skera burt augnlokin. Fátt er meira til þess fallið að setja blett á ferðina framundan sem og flugfélagið sem þú flýgur með. Það er jú ekki eins og þú hafir ekki leitað sérstaklega eftir lægsta fargjaldi klukkustundum saman bara til þess eins að sjá enn ódýrari sæti daginn eftir að þú gekkst frá bókun.

Við þrjú hér hjá Fararheill munum ekki eftir slíkri lækkun á tilteknu flugi. Við munum bara eftir hækkunum sem eru jú algengari hjá Icelandair en moskítóbit í Angóla.

Það hins vegar er EKKI raunin erlendis. Þar leggur Icelandair út með allt annað farmiðaprógramm en fyrir lýðinn heima virðist vera. Í það minnsta er töluvert af kvörtunum á samfélagsmiðlum frá fólki sem keypt hefur flug með Icelandair og komist að því síðar að verð á sama sætinu í sama fluginu hefur lækkað.

Hvað höfum við fyrir okkur í þessu? Allnokkur dæmi en við látum tvö nægja og takið vel eftir hversu langur tími er á milli þeirra.

Kvörtun frá 28. desember 2016. Skjáskot

Og annað dæmi frá árinu 2013…

Í fyrra dæminu lækkaði fargjaldið um TÓLF ÞÚSUND krónur á tæpum sólarhring og í því seinna lækkaði sama sætið í sama fluginu um TUTTUGU OG ÞRJÚ ÞÚSUND krónur daginn eftir.

Sorrí Stína en þetta eru bara ekki boðlegir viðskiptahættir. Alveg burtséð frá því að við vitum ekki til þess að verð fyrir Íslendinga í íslenskum krónum hjá þessu íslenska fyrirtæki fyrir sama sæti í sama flugi lækki nokkurn tímann þegar fram líða stundir, þá er þetta rosalega grimmt sölutrix.

Icelandair er væntanlega að breyta verðinu, upp eða niður, miðað við eftirspurn og tíma til flugs og að vissu leyti skiljanlegt fyrir flugfélag. Autt sæti er jú dauður peningur hjá flugfélagi. En er sá missir meiri en þegar viðskiptavinir sem kaupa sæti í þeirri vissu að það fáist ekki ódýrari sæti finna út að það er alls ekki raunin? Hvað gera þessir viðskiptavinir þá haldiði? Jú, blása á samfélagsmiðlum og skapa vantraust á fyrirtækinu.