ÆÆÆ. En leiðinlegt. Fyrirtæki sem okrað hefur á landanum um áraraðir virðist ekki ná vopnum sínum aftur í mesta ferðagóðæri sem dunið hefur yfir landið frá aldaöðli.

Norður og niður. Eins og við spáðum er ekkert flugtak á bréfum Icelandair þrátt fyrir nýja stjórn og afnám hafta.
Það er töluvert gleðiefni að verð á hlutabréfum í Icelandair heldur áfram að falla og er komið aftur í fjórtán krónur per hlut eftir hænustökk upp á við daginn sem höftin voru formlega afnumin. Það skammgóður vermir.
Þú kannski lyftir brúnum þegar við segjum gleðiefni en leyfðu okkur að útskýra með nokkrum punktum:
- Forstjóri Icelandair Group vill stórauka ójöfnuð í landinu.
- Forstjóri Icelandair Group hefur dissað opinberlega heila kynslóð með smánarorðunum „me,me,me kynslóðin.“
- Icelandair greiðir einna lélegust laun fyrirtækja í landinu samkvæmt fyrirtækjaúttekt VR og þurfti ríkisaðstoð til að setja stopp á verkfall flugstjóra sem vildu hærri laun hér fyrir ekki svo löngu síðan.
- Icelandair hefur aldrei okkur vitandi farið að reglum og tilkynnt viðskiptavinum sínum um lagalegan rétt þeirra við seinkun eða aflýsingu. Það kostar nefninlega peninga.
- Þjónusta fyrirtækisins er fyrir neðan allar hellur og dæmi um að fólk bíði mánuðum saman eftir svörum um týnda tösku eða endurgreiðslu.
- Um áraraðir, áður en Ísland komst í tísku, kostaði árslaun verkamanns að fljúga með Icelandair nokkurn skapaðan hlut útaf einokun. Þeir okruðu eins og mafían á flugsætum sínum og við höfðum ekkert val ef við vildum út.
- Icelandair hefur reynt sitt besta til að setja stólinn fyrir dyr hjá öllum öðrum íslenskum flugfélögum gegnum tíðina.
- Fyrirtækið montar sig af því að rétta veikum hjálparhönd með heilsíðuauglýsingum í öllum fjölmiðlum.
- Icelandair stóð hart í vegi fyrir komugjöldum hér fyrir nokkrum árum. Komugjöld sem hefðu nú fært tugmilljarða króna inn í ríkissjóð til að laga vegi, bæta aðgengi, vernda mannslíf og guð má vita hvað annað.
- Icelandair flýgur eldgömlum flugflota og vélar sem þeir leigja eru eldgamlar líka. Það þýðir stóraukna mengun.
- Icelandair er á lífi þökk sé lífeyrissjóðum landsmanna. Sömu landsmanna og njóta ekki alltaf jafn góðra kjara og erlendir ferðamenn hjá fyrirtækinu.
- og svo framvegis og svo framvegis…
Og svona áður en þú minnist á að lífeyrissjóðirnir tapi tugmilljörðum á bréfum í fyrirtækinu er ágætt að muna tvennt. „Sérfræðingarnir“ hjá lífeyrissjóðunum voru bölvaðir vitleysingar löngu fyrir hrun enda töpuðu sjóðirnir hundruðum milljarða á Hruninu 2008. Þeir eru bölvaðir vitleysingar að henda svo miklu fjármagni í Icelandair sem veit ekkert í hvaða fót á að stíga. Eða hvaða ferðaþjónustufyrirtæki er með allt niðrum sig á mesta annatíma í íslenskum túrisma? Plús sú staðreynd að lífeyrissjóðsgreiðslur meðalmannsins hafa verið brandari um áraraðir og verða brandari um ókomna framtíð. Nema náttúrulega þú sért ríkisstarfsmaður eða fyrrum þingmaður 😉







