Ferðaskrifstofa svindlarans Pálma Haraldssonar, Úrval Útsýn, freistar nú ferðaþyrstra með fimm nátta ljúfri siglingu um karabíska hafið í nóvember næstkomandi á sérdeilis góðu verði eins og ferðaskrifstofan sjálf kemst að orði. En þar sem Fararheill er þúsund sinnum heiðarlegra batterí en ÚÚ finnst okkur nauðsynlegt að benda á að NÁKVÆMLEGA sömu ferð geta tveir einstaklingar farið með 180 þúsund króna afslætti.

Myndir þú treysta þessum manni til að bjóða þér heiðarlegt tilboð? Ekki við hér hjá Fararheill.
Hér má lesa allt um Flórídaferð + Karíbahafssiglingu Úrval Útsýn í nóvember næstkomandi. Ekki hræðilegur pakki á neinn hátt. Allir vilja jú sól og sællegheit þegar heimafyrir snjóar allt á kaf og að skafa bílrúður morgna og kvölds er þjóðarsportið.
En helst er langt seilst í vasa áhugasamra samkvæmt könnun Fararheill. Ferð Úrval Útsýn þar sem gist er sjö nætur á tveimur hótelum í Tampa, flug fram og aftur plús fimm daga sigling um hlua Karíbahafs í skítaklefa með útsýni yfir á fataskáp kostar parið samtals 498 þúsund krónur.
Hljómar ekki of illa. Rétt tæplega 250 þúsund kall á kjaft plús þjórfé um borð fyrir allt heila klabbið er ekki of slæmt á íslenskan mælikvarða. Það er að segja ef þú gerir ekki verðsamanburð.
Ef þú hefur nennu og þor til er nefninlega hægt að fara NÁKVÆMLEGA sömu ferð og Úrval Útsýn auglýsir á 498 þúsund fyrir parið fyrir 323 þúsund krónur. Það er rúmlega 170 þúsund króna afsláttur eða sem nemur 55 prósenta afslætti. Það ívið feitari afsláttur en Costco er að bjóða landanum og allir eru að missa sig yfir.
Hvernig gerum við það? Með því að gera hlutina sjálf 🙂
A) Við bókum flugið hjá Icelandair (sem er eina flugfélagið sem flýgur beint til Tampa þaðan sem siglt er). Heildarkostnaður við flug fram og aftur fyrir tvo með tösku út 22. nóvember og heim 4. desember eru tæpar 126 þúsund þegar þetta er skrifað.
B) Við bókum hótelin sjálf gegnum hótelbókunarvef Fararheill (sjá neðar.) Þriggja nátta dvöl á þriggja stjöru Aloft Tampa Downtown kostar hjá okkur heilar 43.486 krónur eins og sjá má hér til hliðar.
Svo er líka gist á bakaleiðinni í fjórar nætur á fjögurra stjörnu Sunset Vistas Suites og það kostar hjá okkur heilar 84 þúsund krónur eins og má líka sjá hér til hliðar.
En þá er bara hálf sagan sögð.
C) Við skjótum okkur rakleitt yfir á bandaríska vefmiðilinn Cheaptickets.com. Þar má finna þúsundir ferða af öllu tagi á hreint frábæru verði til og frá Bandaríkjunum. Þar á meðal velflestar siglingar sem hefjast frá Flórídaskaganum. Auðvitað þar líka siglingin sem Úrval Útsýn auglýsir. Innriklefi í sömu siglingu og ÚÚ auglýsir með Carnival Paradise á sama tíma kostar hér 34.800 krónur á kjaft. Samtals rétt tæpar 70 þúsund krónur samtals.
Ef við rifjum upp menntaskólastærðfræðina og leggjum saman kemur í ljós að ef þú græjar þetta sjálf/-ur kemst parið eða hjónin sömu dúlluferð og Úrval Útsýn auglýsir á tæpar 500 þúsund krónur fyrir rétt rúmar 320 þúsund krónur 🙂
Það þýðir að þú sparar 170 þúsund krónur eða svo á sama pakka og ÚÚ býður með því að eyða sirka tíu mínútum aukalega umfram það sem þú gerir venjulega. Og í hvaða starfi ert þú með 170 þúsund kall á tíu mínútum? Hvergi nema þú sért toppur hjá HB Granda eða Samherja sem fá að veiða í landhelginni okkar fyrir slikk og ingenting. Og það án þess að fylla vasa svindlara og megafífls.
Verði þér að góðu 😉







