Ekkert skal fullyrt um aldur þess sumarafleysingafólks á Morgunblaðinu sem á að færa fólkinu í landinu mikilvægar fréttir af atvikum á klakanum sem skipta lýðinn máli. Ljóst má þó vera að blaðafólk sem lýsir sex prósenta hækkun bréfa í Icelandair sem „miklu flugi“ þarf að senda á endurmenntunarnámskeið hið fyrsta.

Stjórnarformaður og forstjóri Icelandair. Fátt um fína drætti þar á bæ þó átján ára blaðafólk líti svo á. Skjáskot
Ekki er ólíklegt að sonarsonur eigenda Samherja eða dótturdóttir Guðbjargar Matthíasdóttur í Ísfélaginu hafi fengið vinnu hjá Mbl enda blaðið alfarið í eigu sjávarútvegsaðila og eðli máls samkvæmt vill það fólk fá sitt fyrir snúðinn.
Kannski er það dótturdóttir Guðbjargar sem skrifar þessa grein um háflug Icelandair á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Kannski ekki. Í öllu falli þarf blaðafólk sem hefur þann eina starfa að skýra frá og til hlítar hvað hinn og þessi hluturinn í samfélaginu þýðir fyrir Jón á Bíldudal, Gunnu á Skarðseyri og Sigvalda í Hafnarfirði að setjast á skólabekk á nýjan leik ef það kallast að fara á flug þegar hlutabréf Icelandair ná 15 krónum.
Þetta eru jú sömu hlutabréfin og fóru í 38,5 per hlut vorið 2016 og langt niður í draslflokk fyrir skömmu síðan. Þó það sé örlítið hopp upp á við þennan daginn merkir það ekki flug á neinn máta nema blaðamaður sé að vitna í fyrsta flug Wright-bræðra hvers vél komst upp í loftið í heilar tvær sekúndur sem flug. Það er enn tæplega 60% tap á bréfunum frá toppinum fyrir rúmu ári síðan og ekkert bendir til að bréf flugfélagsins séu að fara á „flug“ á næstu mánuðum eða árum.







