H átíð hins brennandi manns, The Burning Man Project, er ekki sérstaklega þekkt hér á landi. En sakni menn þess anda sem réði ríkjum á stöðum eins og Woodstock hátíðinni hér í denn þá er það einmitt þessi atburður sem kemst næst því að kveikja það bál í brjóstum manna að sögn þeirra sem prófað hafa.

Sextíu þúsund manns sækja nú Burning Man hátíðina í eyðimörkinni í Nevada

Sextíu þúsund manns sækja nú Burning Man hátíðina í eyðimörkinni í Nevada

Er það enda svo að á rúmum tíu árum er Burning Man viðburðurinn farinn úr því að vera nokkrir tugir manna á ströndinni við San Francisco í rúmlega 60 þúsund manna hóp sem árlega kemur nú saman í Black Rock eyðimörkinni í Nevada í Bandaríkjunum.

Að ætla sér að lýsa hátíðinni er langsótt þar sem hún fellur ekki undir neina hefðbundnar skilgreiningar. Henni má þó lýsa sem frjálslegri blöndu Mad Max bíómyndanna, Woodstock hippahátíðarinnar og útilistasafni. Hér gilda í raun engar reglur og það heillar frjálslyndar sálir í massavís.

Samt er aðgangseyririnn ekki í neinum fátækraklassa. Ódýrustu miðarnir eru fráteknir fyrir þá einstaklinga sem þátt hafa tekið frá upphafi en aðrir þurfa að punga út milli 20 og 60 þúsund krónum fyrir að vera með.

Sjá allar nánar upplýsingar um hátíðina og tilgang hennar á heimasíðu Burning Man hér.

THE FIRE & THE ASH / BURNING MAN 2012 from Aaron Freeder on Vimeo.