Þú myndir sennilegast ekki segja nei við nýju pari af fallegum skóm gegn því að gefa hundrað hótelum eða veitingastöðum góða einkunn á Tripadvisor? Eða hvað?

Best er að hafa svolítinn vara á sér við val á veitingastöðum erlendis sé farið eftir umsögnum á vefum eins og Tripadvisor
Íslendingar eru ekkert frábrugðnir öðrum þegar kemur að því að forvitnast um góða veitingastaði, bari, diskótek, hótel eða afþreyingu á áfangastöðum sínum erlendis. Við viljum vita hvað á að forðast og hvar toppveitingastaðirnir finnast. Og því förum við á vefi eins og Tripadvisor þar sem milljónir ferðalanga gefa hinum ýmsu stöðum víðs vegar í heiminum einkunn.
Sífellt eru þó að koma í ljós fleiri dæmi þess að sú einkunnagjöf getur verið meingölluð. Nú eru hótel- og veitingahúsaeigendur á vinsælum stöðum á Ítalíu fjúkandi yfir nokkrum fyrirtækjum sem bjóða hverjum sem er gjafir fyrir að gefa einkunnir á Tripadvisor. Engin þörf er á að kynna sér staðina heldur aðeins að gefa þeim góða einkunn og voilá. Nýju skórnir eru þínir.
Þetta orðið víðtækt vandamál að því er fram kemur í ítalska neytendablaðinu Il Salvagente. Ýmis fyrirtæki sem kynnt eru sem vefþjónustufyrirtæki ganga orðið milli hótela sem fáar hafa einkunnir eða hafa lélegar einkunnir á vefum á borð við Tripadvisor og bjóða, gegn greiðslu, að bæta einkunnina á skömmum tíma.
Ekki er við öðru að búast en einhverjir grípa þá gæs enda getur góð einkunn á vinsælum vef skipt sköpum fyrir viðskiptin eins og margoft hefur sýnt sig. En það þýðir einnig að við getum ekki treyst alfarið á það sem þar kemur fram þegar við gerum okkar áætlanir. Og sé vandamálið til staðar á Ítalíu má heita víst að það er líka til staðar í öðrum löndum.







