Bandaríska flugfélagið Delta Airlines og þýska flugfélagið Lufthansa hafa bæði á undanförnum vikum boðið tímabundið til sölu fargjöld til hinna ýmsu borga á verulegum afslætti frá hefðbundnu verði. Gallinn bara sá að bæði flugfélögin földu tilboðsverð sín fyrir flugleitarvélum.
Þannig komust þeir sem fóru inn á vef Delta Airlines á réttum tíma möguleika að kaupa flug fram og til baka til ýmissa borga Evrópu fyrir sextán þúsund krónur. Tilboðið lifði aðeins í nokkrar klukkustundir og fannst ekki hjá neinum flugleitarvélum.
Sömu sögu er að segja af helmings afslætti þýska félagsins sem aðeins var auglýst á vef Lufthansa og aðeins í örfáar stundir.
Fjallar AP fréttastofan um stríð það er virðist hafið milli flugfélaga og flugleitarvéla á netinu en stór meirihluti þeirra sem ferðast nýta sér nú slíkar flugleitarvélar til að finna ódýrustu fargjöldin. Það pirrar flugfélögin sem vilja fá traffíkina inn á sínar eigin síður og vilja auðvitað helst að viðskiptavinir leiti ekkert annað.
Fararheill.is hefur greint frá tilraunum í þessa veruna hjá Iceland Express og Icelandair sem bæði birta reglulega sértilboð sem ekki finnast hjá flugleitarvélum. Það er því ráð jafnvel þó lengri tíma taki að kanna flugfélögin sjálf í viðbót við að leita hjá betri flugleitarvélunum.






