Svo undarlegt sem það nú er á sama tíma og fjöldi Íslendinga ber bumbur við Alþingi til að mótmæla bágu fjárhagsástandi þá er annar stór hópur landsmanna sem leggur land undir fót og spilar golf við kjöraðstæður úti í heimi. Eru margar golfferðir haustsins alfarið orðnar uppseldar eða að verða það.
Á þetta sérstaklega við um styttri og jafnframt ódýrari ferðirnar til Spánar sem langvinsælasti áfangastaður íslenskra kylfinga.
Er til að mynda uppselt í sex golfferðir Vitaferða til Valle del Este og aðeins fimm sæti eftir í einni ferð af fjórum þegar þetta er skrifað með ferðaskrifstofunni til Islantilla en þessar ferðir eru allar í október.
Uppselt er í tvær ferðir af fjórum til Villaitana með Úrval Útsýn þó enn séu til sæti til annarra golfstaða sem ÚÚ býður.
Enn eru til sæti í síðustu golfferðir Heimsferða til Spánar en alveg fullbókað er í allar golfferðir Express ferða.






