Samkvæmt nýrri úttekt Fararheill.is meðal flugleitarvéla er hið sama upp á teningnum nú og verið hefur. Engin ein leitarvél stendur alltaf uppúr heldur skiptast þær á um að bjóða bestu verðin hverju sinni.
Lét ritstjórn fimm leitarvélar leita að besta verðinu til þriggja mismunandi áfangastaða og útkoman er að þrjár mismunandi vélar bjóða bestu verðin hverju sinni.
Sannar þessi könnun og eldri kannanir Fararheill.is nauðsyn þess að taka sér góðan tíma til samanburðar því spara má verulegar upphæðir eins og sést á meðfylgjandi dæmum.
Dæmi A: Flug fyrir einn fullorðinn milli Keflavíkur og Orlando milli 22.des – 9.janúar 2010. Skattar innifaldir.*
- Kayak.com skilaði bestu niðurstöðunni. Flug þessa daga með millilendingu kostaði 91.702 krónur.
- Yapta.com kom næst með sitt besta tilboð þessa daga upp á 92.304 krónur.
- Momondo.com fann best 95.743 krónur.
- Dohop.com skilaði fluginu á 112.632.
- Cheapoair.com rak svo lestina í þessu dæmi með 126.877 krónur.
- Munur á hæsta verði og lægsta 35.175 krónur
* Leitað samtímis á öllum vélum klukkan 00:20 þann 4. október 2010. Allir vellir í Orlando.
DÆMI B: Flug fyrir einn fullorðinn milli Keflavíkur og Mílanó 4.-18. apríl 2011. Skattar innifaldir.*
- Cheapoair.com skilaði bestu niðurstöðunni hér og fékkst farið á 57.616 krónur.
- Dohop.com kom næst með verð upp á 59.800 krónur.
- Yapta.com bauð best 85.154 krónur.
- Kayak.com bauð nákvæmlega sama verð 85.154 krónur.
- Momondo.com var langneðst að þessu sinni með 91.525 krónur.
- Munur á hæsta verði og lægsta 36.990 krónur
Leitað samtímis á öllum vélum 00:40 þann 4.október 2010. Allir vellir í Mílanó.
DÆMI C: Flug fyrir einn fullorðinn milli Keflavíkur og London 1.-8. júní 2011. Skattar innifaldir.*
- Dohop.com bauð hér best og fékkst farið á 35.555 krónur.
- Kayak, Yapta og Cheapoair buðu öll farið á 36.625 krónur.
- Momondo.com rak lestina hér með besta boð upp á 38.585 krónur.
- Mismunur á hæsta verði og lægsta 3.030 krónur
* Leitað samtímis á öllum vélum 00.53 þann 4. október 2010. Allir vellir í London.






