Svo er að sjá sem næg samkeppni sé milli ferðaskrifstofa í Danmörku ef marka má nýjustu tilboðin. Minnst tvær ferðaskrifstofur, Apollorejser og Bravo Tours, bjóða þar viðskiptavinum sínum tvær ferðir fyrir eitt verð.
Hjá Apollorejser snýst tilboðið um að allir þeir sem kaupa hjá þeim jólaferð til einhverra af þremur áfangastöðum í Asíu fá heila sumarleyfisferð innan Evrópu næsta sumar í kaupbæti. Sjá tilboðið hér.
Sólarhring eftir þetta útspil bauð Bravo Tours svipað tilboð. Þarf þá að kaupa jólaferð þeirra til Kanaríeyja og þá er frí ferð til Krítar næsta sumar viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Sjá tilboðið hér.
Þess má geta að Bravo Tours er í eigu Primera Travel Group sem einnig á Heimsferðir og Terra Nova á Íslandi. Fyrirtækið er íslenskt en ekkert bólar á tilboðum sem þessum hér á landi.






