Ný og heldur óhugguleg viðvörun barst frá borgaryfirvöldum í Lot-et-Garonne í suðvesturhluta Frakklands nýlega. Var fólki ráðlagt að hafa augun hjá sér gagnvart asískum vespum sem hafa komið sér fyrir í héraðinu og eru vægast sagt árásargjarnar. Svo mjög reyndar að einar átta árasir á fólk höfðu komið inn á borð bæjaryfirvalda.
Héraðið er nokkuð inni í landi í rúmlega klukkustundar fjarlægð frá Bordeaux til austurs og kemur nokkuð á óvart að umræddar vespur geri usla þar þó löngu sé orðið ljóst að þær hafi tekið sér bólsetu í landinu.
Eru heimamenn jafnt sem ferðamenn varaðir við að fara nálægt búum vespunar því þær hópast saman til árása og stungur þeirra sársaukafyllri en hefðbundinna evrópskra vespa.






