Spekingar Icelandair ganga nú út frá því sem vísu að Boeing Max-vélar félagsins fái leyfi til flugs á ný eigi síðar en í febrúar á næsta ári. Það er töluvert bjartsýnni spá en fræðingar annarra flugfélaga gera ráð fyrir.

Boeing Max í loftið í febrúar eða mars? Fáir jafn bjartsýnir og forráðamenn Icelandair. Mynd Boeing
Eins og lesa má um hér gera áætlanir Icelandair ráð fyrir að Boeing Max-vélar flugfélagsins komist í gagnið eigi síðar en í lok febrúar á næsta ári.
Að öllu eðlilegu væri óhætt að taka mark á spekingum Icelandair. Svo er þó ekki. Flugfélagið minnst þrívegis áður á þessu ári gefið sér að Max-rellurnar fari í loftið hvað úr hverju. Það í ofanálag við að bíða fram á síðustu stundu eftir að parkera þessum gallagripum eftir að fleiri hundruð létu lífið.
Sem merkir auðvitað að spekingar Icelandair eru ekkert gáfaðri en Jón vélsmiður og Gulla ræstitæknir í Breiðholtinu þrátt fyrir alla sína flottu menntun. Við hér á Fararheill spáðum sex mánaða töfum að lágmarki og líklega töluvert lengri töf en það. Og viti menn! Hvort höfðum við rétt fyrir okkur eða spekingar Icelandair?
Forstjóri Ryanair, hinn umdeildi Ryan O´Leary, segist í viðtali við BBC þennan daginn, ekki gera ráð fyrir Boeing Max-vélum í loftið fyrr en NÆSTA SUMAR!!!
En hvorki forráðamenn Icelandair né Ryanair gera ráð fyrir að þegar Max-rellurnar loks fljúgi á ný þá vilji kannski engin lifandi sál setjast um borð í þessum gallagripum. Það er nefninlega ekki nóg að koma Max-vélunum í loftið á ný. Þá á enn eftir að sannfæra almenning um að flug með þessum rellum sé 100 prósent öruggt.
Það mun taka mun lengri tíma en biðin eftir að rellurnar fari í loftið á ný…







