Ólíkt íslenskum miðlum sem hugsa lítt sem ekkert um neytendur landsins og láta sér fátt um finnast að birta fréttir sem gagnast Jóni og Gunnu, er annað uppi á teningnum í Bretlandi. Þar er gert mál úr því að flugfélagið Primera Air getur ekki alveg staðið við stóru orðin.

Auglýsa beint flug en það stenst ekki alltaf hjá Primera Air. Mynd AviaPro

Primera Air, í eigu Andra Más Ingólfssonar, reynir nú að brjótast út úr fjórðu deildinni í flugbransanum og gera sig gildandi í beinu flugi yfir Atlantshaf milli Evrópu og Bandaríkjanna. Fyrsta tilraun þeirra í vor með flug til og frá Birmingham dó í fæðingu en nú er flugfélagið á fullu að reyna aftur og nú frá London, Brussel og París.

Kannski gengur það upp og kannski ekki. Þetta er erfiður bransi og mörg risaflugfélög að keppa á þessari leið. Þó má segja Primera Air til tekna að finna má skrambi lág fargjöld á milli og það langt fram á næsta ár.

En þekktasti ferðablaðamaður Bretlands, Simon Calder hjá dagblaðinu Independent, gerir sér mat úr því þennan daginn að loforð Primera Air um þráðbeint flug standist ekki hundrað prósent. Um allavega sex daga skeið í byrjun september þurfa farþegar flugfélagsins að millilenda í Keflavík bæði vestur um haf og austur.

Millilending annars vegar og beint flug hins vegar eiga ekkert sameiginlegt, þó vissulega lofi íslenskar ferðaskrifstofur reglulega beinu flugi hingað og þangað sem stenst svo alls ekki þegar til kemur. Ekki aðeins er millilending mun tímafrekari kostur heldur og er það flug hættulegra því mesta hættan á óhöppum og mistökum í flugi er einmitt við lendingu og flugtak.