Úff. Ekki batnar það fyrir íslensk flugfélög þegar einn allra stærsti ferðamiðill heims, Condé Nast Traveler, tiltekur bæði Wow Air og Primera Air sem flugfélög hvers tilboð séu „klárlega of góð til að standast skoðun.”

Vitlegra að halda sig frá Wow Air og Primera Air að mati Condé Nast. Samsett mynd

Fátt nýtt svosem í grein CNTraveler sem vitiborið fólk hefur ekki fyrir löngu gert sér grein fyrir. Svona markaðsplott til að auglýsa flug á mun lægra verði en raunin er. Við þekkjum þetta sannarlega frá Wow Air sem auglýsir sitt lægsta verð með fleiri skilmálum en Facebook. Lægsta verð þar miðast við engan farangur, miðast við að tveir kaupi saman, miðast við að greitt sé með einhverju netgíródrasli og að viðkomandi sé meðlimur í sérstökum MyWow-klúbbi. Plús auðvitað að hver andardráttur um borð kostar nánast extra.

Kjósi fólk ekkert af ofangreindu er lágmarkskostnaður miklu hærri á flugferðum en gefið er í skyn í auglýsingum.

Sama er upp á teningum Primera Air en í greininni aðallega verið að fjalla um tilboð Primera yfir Atlantshafið milli Bretlands og Bandaríkjanna en þar ætlaði flugfélagið sér stóra hluti þetta árið. Þegar þetta er skrifað er fátt sem bendir til að markaðsmaður ársins á Íslandi, Andri Már Ingólfsson, hafi veðjað á réttan hest með Atlantshafsflugi sínu.

Sorglegt samt að Wow Air og Primera Air hafi náð þeim stalli að vera tiltekin sérstaklega þegar kemur að flugfélögum sem Bandaríkjamenn ættu að varast að mati Condé Nast.

Ekkert þar sem við höfum ekki sagt áður 😉