Sé mið tekið af þeim er tjá sig um Wow Air Skúla Mogensen á risamiðlinum Tripadvisor er flugfélagið dálítið eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Þú annaðhvort elskar eða hatar og ekkert þar á milli.

Merkilegt að tengja á vef þar sem helmingur segir Wow Air hræðilegt eða dapurt. Skjáskot

Undarlegt er samfélagsmiðlateymi Wow Air. Það blokkerar öll ummæli á vinsælasta vef heims; Facebook, en auglýsir svo sérstaklega ummæli farþega sinna á Tripadvisor. Ummæli sem eru ekki til þess að auka hróður flugfélagsins mikið…

Neðarlega á forsíðu vefs Wow Air býður flugfélagið áhugasömum að sjá hvað viðskiptavinir hafa um fyrirtækið að segja á vef Tripadvisor.

Sem væri fantagóð hugmynd ef þar væri að finna toppeinkunnir og ánægjulegheit. Sem er ekki alveg raunin.

Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti er rétt liðlega helmingur ánægður með þjónustu Wow Air en rétt tæplega helmingur gefur flugfélaginu falleinkunn. Nánast 50/50 gott og slæmt.

Það er ekki sérstaklega góð auglýsing í neinu kjördæmi Skúli…