Það er til marks um fyrsta flokks þjónustu Icelandair, sem aldrei þreytist á að auglýsa og kynna vildarpunktakerfi sitt, að það kemur alltaf fjölda viðskiptavina á óvart að punktarnir eyðast og falla úr gildi eftir ákveðinn tíma.

Vildarpunktar endast ekki að eilífu gott fólk. Rétt er að kanna hversu gamlir vildarpunktar leynast á reikningnum fyrir áramótin því séu þeir eldri en fjögurra ára detta þeir út sísona

Vildarpunktar endast ekki að eilífu gott fólk.
Rétt er að kanna hversu gamlir vildarpunktar leynast á reikningnum fyrir áramótin því séu þeir eldri en fjögurra ára detta þeir út sísona

Það vitaskuld er það sem flugfélagið vill. Það er engin tilviljun að sjaldan eða aldrei birtist tilkynning frá vildarklúbbi Icelandair þar sem fólk er minnt á að um hver áramót falla niður ALLIR áunnir punktar sem orðnir eru fjögurra ára. Þeir fyrnast einhliða og endanlega.

Neibbs! Engum dettur í hug að minna alla þá sem farið hafa krókaleiðir á sömu bensínstöðina árum saman eða einungis verslað í fokdýrri kjörbúð Silla og Valda til þess eins að fá aukalega vildarpunkta að þessir sömu punktar endasta ekki ævina.

Allt kemur þetta fram í smáa letrinu sem því miður enginn hefur nennu til að lesa en vildarpunktar sem ná fjögurra ára aldri deyja drottni sínum á miðnætti um hver áramót. Ekki nóg með það heldur falla einnig út öll vildarpunktastig sem safnast hafa saman á hverju ári fyrir sig á sama tíma.

Við þessu er í raun aðeins eitt að gera fyrir utan að nota punktana reglulega og það er að skipta vildarpunktum í gjafabréf gegnum fyrirtækið Points.com en þar er hægt að breyta áunnum punktum í inneign hjá útvöldum netverslunum.

Eða þá hitt, að gefa skít í vildarpunkta og heimta lægri flugfargjöld í staðinn. Það er jú ekki sérstök deild hjá Icelandair sem er bara í vildarpunktaruglinu. Hægt að spara nokkra seðla þar..