Flugfélagið Wow Air er undantekningarlítið að bjóða lægsta verðið til hinna og þessara áfangastaðanna ef aðeins er miðað við Wow Basic fargjald þar sem engum er heimilt að taka með meira en seðlaveski. Staðan breytist hratt til hins verra ef þig langar til að grípa með meiri farangur en það.

Með handfarangur til Írlands? Þá er Icelandair mun ódýrari kostur en Wow Air. Samsett mynd
Frábært dæmi um það fundum við í dag þegar við bárum saman fargjöld Wow Air og Icelandair til Dublin á Írlandi í vetur.
Fyrst rákumst við á fargjald hjá Wow Air þann 26. nóvember án alls fyrir svo lítið sem 4.999 krónur eða 5.989 krónur með bókunargjaldi. Sannarlega flott verð til fallegrar borgar. Ekki skemmdi prísinn á heimferðinni heldur mikið fyrir. 8.999 krónur eða samtals 14.997 krónur fram og aftur.
Nema þá kom oggupons babb í bát. Betri helmingurinn krafðist þess að hafa handfarangurstösku meðferðis. Eðlileg ósk enda vill snyrtilegt fólk ekki hanga í sömu nærum vikum saman á erlendri grundu og gaman er að geta burstað tennur svona vons in avæl líka.
En þá kom líka babb í bát Wow Air. Það kostar nefninlega drjúgt að hafa með skitin tíu kíló í handfarangurstösku. Ein tíu kílóa handfarangursdrusla jók verðið á ferðinni um hvorki meira né minna en 80 prósent!!! 14.997 krónur urðu í vetfangi að 26.991 krónu. Með öðrum orðum þá heimtar herra Mogensen rúmlega þúsund krónur á hvert kíló af handfarangri.
Til samanburðar þá býður Icelandair flug fram og aftur á svipuðum dagsetningum með tíu kílóa handfarangurstösku meðferðis fyrir 23.275 krónur per kjaft.
Sem eðlilega þýðir að þú sparar tæpar fjögur þúsund krónur að fljúga með Icelandair með
afþreyingarkerfi um borð en með Wow Air þar sem skemmtunin felst í að horfa í gaupnir.
Frekar óeðlilegt að sjálfskipað flugfélag fólksins sé að heimta fleiri seðla en gamla drottningin ef þú dirfist að henda nærum í bakpoka á leið til útlanda. Herra Mogensen er að gera eitthvað alvarlega vitlaust ef hann leyfir Icelandair að pakka sér saman…







