Einar sex greinar þurftum við að skrifa hér til að flugfélagið Primera Air hunskaðist til að birta skýrt og greinilega á vef sínum hvar áhugasamir gætu séð svokölluð „sumartilboð” fyrirtækisins. Nú loks er það í lagi en því fer fjarri að þar standi allt eins og stafur á bók.

Sumartilboðin á vef Primera Air þennan daginn. Auglýstu lægstu verð eiga þó alls ekki við um sumarferðir. Skjáskot

Detti fólk inn á íslenskan vef Primera Air þessi dægrin má nú allt í einu sjá á þokkalega áberandi hátt svokölluð sumartilboð flugfélagsins. Jákvætt skref enda við ítrekað bent á að þrátt fyrir auglýsingar var slík tilboð hvergi að finna við leit.

Sem fyrr hjá Andra Má Ingólfssyni, forstjóra og eiganda flugfélagsins, er sjaldan allt sem sýnist. Því fari fólk yfir á sumartilboðssíðu Primera Air, finnst það sem sést hér til hliðar.

Alls ekki slæmir dílar á flugi til vinsælla staða. Önnur leið til Alicante niður í 7.999 krónur og sama flug til Tenerife niður í 10.999 verður seint kallað annað en flott sumartilboð.

Nú skal viðurkennast að eflaust er hægt að deila heilmikið um hvað orðið „sumartilboð” felur í sér en í okkar huga hér þá gildir það um flugferðir að sumarlagi. Þannig lítur Primera Air þó ekki á málið. Flottu „sumartilboðin” þeirra gilda nefninlega um flugferðir næsta vetur.

Dæmi um það er flugið til Alicante á 7.999 krónur. Það ágæta tilboð er fyrst í boði þann 23. október. Til að komast aðra leiðina til Tenerife á 10.999 krónur þarf að fara fram um næstum sjö mánuði eða til 13. nóvember. Í ofanálag finnst flug aðra leið til Trieste á Ítalíu niður í 14.999 krónur fyrst um miðjan september þrátt fyrir að síðar í þessum mánuði fáist sama flug allt niður í 9.999 krónur!

Vitaskuld ekkert ólöglegt en merkilegt nokk sé litið yfir á danskan og sænskan vef Primera Air, þorir flugfélagið ekki að bjóða þarlendum upp á „sumartilboð” á vetrarferðum. Þar gildir sumarútsala um flugferðir Í SUMAR.

En auðvitað að fíflast með fólkið sem kom þessu flugfélagi á laggirnar og gerði Andra Má vellauðugan upp fyrir haus. Bjóða öllum öðrum eðlileg kjör…