Setningin sem um ræðir kemur fyrir í sirka þriðjunga þeirra fregna sem fluttar eru af Wow Air flugfélagi Skúla Mogensen: „Ekki náðist í upplýsingafulltrúa vegna fréttarinnar.“

Brosandi vélar en oft geta farþegar Wow Air ekki sagt það sama.

Brosandi vélar en oft geta farþegar Wow Air ekki sagt það sama.

Þessi setning ein staðfestir að viðkomandi fyrirtæki er með allt lóðrétt niðrum sig og getur ekki með nokkru móti „spinnað“ góða sögu til að gera vonda sögu góða.

Tilfellið er jú að upplýsingafulltrúar hafa þann EINA starfa að svara fjölmiðlum og þá auðvitað helst stóru fjölmiðlunum. Þetta er fólk sem er sítengt hvar sem er í heiminum og missir ekki af neinu.

Setningin hér að ofan kemur aldrei fyrir þegar eitthvað jákvætt er í fréttum um fyrirtæki. Þá er upplýsingafulltrúi,  eða fulltrúar, boðnir og búnir, dag og nótt að aðstoða og það jafnvel um Verslunarmannahelgina.

En þegar Mbl flytur frétt af því að flugi Wow Air til Dublin hafi seinkað um SAUTJÁN KLUKKUSTUNDIR er upplýsingafulltrúinn allt í einu of bissí til að svara!!!

Þetta er hræðilega lélegt og orsökin getur aðeins verið ein. Sú að Wow Air hafi verið með allt niðrum sig í þessu tilfelli og því hafi farþegar fengið misvísandi svör í hálfan sólarhring eftir að flugið átti að hefjast.

Viðkomandi farþegar geta þó kannski brosað út í annað vitandi að þessi mikla töf á ferðinni er 100% ávísun á skaðabætur ef eftir er leitað. Þær nema rúmum 54 þúsund krónum á hvern kjaft um borð. Ekki hræðilegt tímakaup fyrir sautján tíma ef út í það er farið 🙂