Það er ekki á hverjum degi sem ferðaskrifstofan Plúsferðir auglýsir flugferðir á dágóðu verði. Það gerir ferðaskrifstofan nú og býður barasta nokkuð vel ef aðeins er þörf á að komast út aðra leiðina.
Þetta kalla heimamenn hjá Plúsferðum „heita pottinn“ en sá hefur undanfarin ár verið galtómur að mestu allar götur síðan Iceland Express notaði sama heiti yfir sértilboð hjá flugfélaginu sáluga.
Í heita potti Plúsferða má nú finna nokkur tilboð á flugi aðra leið til Kanarí og Tenerife í þarnæstu viku, 29. mars til 31. mars, niður í 19.900 krónur með tösku og öllum gjöldum og sköttum. Hér bæði um að ræða flug til Kanarí og Tenerife og verðið afar gott miðað við annað sem býðst yfir þennan tíma.
En eins og virðist alltaf vera lenska á klakanum hangir hér skítur á spýtu. Flestir þeir sem til Kanaríeyjanna halda héðan þurfa að komast heim aftur. Það kostar hönd og fót.
Meðan 19.900 kall fyrir flug með tösku er fínt er ekki hægt að segja hið sama um flug til baka fyrir 67 þúsund krónur. Svo mikið kostar að fljúga heim aftur gegnum Plúsferðir þann 9. apríl frá Tenerife eða rúmlega viku eftir brottför í þessum tilfellum.
Við leitum aðeins lengur og dettum niður í 40 þúsund krónu fargjald þann 11. apríl frá Tenerife. Það fjarri því að vera gott verð aðra leið til Íslands og ef við leggjum þetta saman erum við komin með 60 þúsund kallinn. Sem er í það dýrasta fyrir flug með skömmum fyrirvara til og frá Kanaríeyjum. Þetta versnar enn meira ef við hinkrum lengur. Flug til baka þann 16. apríl kostar aðra leiðina heim litlar 67 þúsund krónur.
Alltof mörg flugfélög og ferðaskrifstofur spila þennan leik. Auglýst útferð hræbilleg en slá verður lán fyrir heimferðinni. Nema auðvitað fyrir þá sem fengið hafa sig fullsadda af gylliboðum og gyllinæðum þingmanna og ráðherra landsins og ætla sér að eyða því sem eftir er á Kanarí. Þeir eru í ágætum málum hjá Plúsferðum.








