Lítið hefur farið fyrir fréttum hér heima um málið en fyrsta alvarlega flugslys ársins átti sér stað í Rússlandi í vikunni þegar vél FlyDubai fórst við lendingu í rússnesku borginni Rostov-on-Don.

Slæmt veður, lítill svefn. Þarf nokkuð nema heilbrigða skynsemi til að setja þetta tvennt í samhengi.
Allir 62 einstaklingar um borð í vélinni létust þegar lending mistókst herfilega og vélin skall til jarðar en samkvæmt fyrstu fréttum af slysinu var slæmu veðri talið um að kenna.
Ýmislegt bendir nú til að veðurfar hafi nú ekki verið raunveruleg orsök slyssins þó úr því verði ekki endanlega skorið fyrr en að rannsókn lokinni. Fréttastofa Russia Today, RT, greinir frá því að rannsókn þeirra hafi leitt í ljós að það hafi líklega verið ofþreyta flugmanna sem gæti hafa skipt sköpum til hins verra við erfiðar aðstæður.
Í fyrsta lagi hafi slæmt veður verið flugmönnum ljóst ÁÐUR en lagt var af stað frá Dúbai en hvorki þeir né flugrekstardeild FlyDubai talið það nógu slæmt til að fresta för eða fella niður. Ekki síður merkilegt að aðstoðarflugmaðurinn hafði þegar slysið átti sér stað unnið sleitulítið í ellefu daga samfleytt og að flugstjórinn sjálfur hafði nokkru áður sagt upp störfum vegna álags og var að vinna sína síðustu daga.
Samkvæmt frásögn flugmanns hjá flugfélaginu er starfsfólkið keyrt í þrot hjá FlyDubai með botnlausri vinnu og fullyrðir sá að aldrei hafi verið spurning um slys vegna þess heldur hvenær. Undir það taka 80 prósent flugmanna FlyDubai í könnun sem flugmálayfirvöld Dúbai létu framkvæma og RT hefur komist yfir.
Hvers vegna þreyta er líklegri ástæða slyssins í Rússlandi en eitthvað annað eins og veður? Til dæmis sú staðreynd að flugmenn sem missa svefn EINA nótt eru helmingi líklegri til að gera mistök í stjórnklefanum samkvæmt könnum sem bandaríski flugherinn lét framkvæma. Hvað þá flugmenn sem fá ekki nægan svefn dögum saman.







