Allir sem æða reglulega í verslunarferðir til Bretlands til að fylla töskur af fatnaði og glingri geta farið að brosa á nýjan leik. Breska pundið á hraðferð niður á við og hefur ekki verið veikara gagnvart krónu síðan í apríl 2013.

Bónus fyrir verslunarglaða á leið til Bretlands
Pundið féll niður í 181 krónu um hádegisbil í dag og þó það hafi örlítið risið á nýjan leik síðdegis í 184 krónur verður að fara þrjú ár aftur í tímann til að finna sambærilegar tölur. Meðalgengi punds síðan þá hefur rokkað að mestu frá 190 krónum og yfir 200 krónur á tímabili. Það fór hæst yfir 212 krónur í júlí síðasta sumar.
Fallið síðan í júlí er því fimmtán prósent eða svo sem þýðir einfaldlega að það er nú fimmtán prósent lægra verð á öllum vörum í Bretlandi en við þurftum að greiða síðasta sumar.
Óvíst er hvort pundið helst svo lágt lengi en fallið helgast af þeim vilja stjórnvalda að segja sig frá Evrópusambandinu. Á meðan geta þeir sem leið eiga til Bretlands keypt meira fyrir minna.







