Líkurnar eru yfirgnæfandi á að íslenska ríkið spari sér tugmilljónir króna nú þegar ákveðið hefur verið að hætta einokunarviðskiptum við Icelandair. Flugfélagið er nefninlega algjörlega úti á þekju á flestum þeim flugleiðum þar sem einhver samkeppni er til staðar.

Hreint ekki sama með hverjum er flogið til Barcelóna sumarið 2016

Hreint ekki sama með hverjum er flogið til Barcelóna sumarið 2016

Gott dæmi um þetta getur sá fundið sem langar að bregða undir sig betri fætinum til Barcelóna í sumar. Nú horfir svo við að þangað getum við valið um fjögur flugfélög sem öll fljúga beint til og frá. Og verðúttekt Fararheill leiðir í ljós að þar skiptir sannarlega máli við hvern þú átt viðskipti ef þér er ekki alveg sama um peninga.

Glöggt má sjá verðmun á flugi fram og aftur alla sumarmánuðina á töflunni hér að neðan. Þar er Icelandair í sérflokki. Sérflokki í okri það er að segja.

Lægsta fargjald Icelandair fram og aftur finnst í ágústmánuði þegar viðskiptavinur kemst á leiðarenda fyrir réttar 71 þúsund krónur. Flugfélagið Primera Air skjagar reyndar langleiðina upp í það ef farangur bætist ofan á 58 þúsund króna kostnað hjá þeim en bæði Vueling og Wow Air eru rúmlega 20 þúsund krónum ódýrari. Vueling býður lægst verð í júní en Wow Air tekur toppsætið í júlí og ágúst.

* Allar upphæðir réttar og af bókunarvélum flugfélaganna klukkan 16:20 þann 9. febrúar 2016. Lægsta verð fram og aftur innan sama mánaðar og námundað í næstu heilu tölu. Enginn farangur með Vueling, Wow Air né Primera en taska fylgir hjá Icelandair. Hafa skal í huga að verðbreytingar eru örar hjá flugfélögunum öllum.