E bóla, miltisbrandur, fuglaflensa, Zíkavírus. Leiki einhver einasti vilji til að vita meira um slíkan ófögnuð og hvernig vísindamenn og heilbrigðisstarfsmenn berjast gegn slíkum vágestum er þjóðráð að drífa sig að skoða CDC safnið í Atlantaborg í Georgíufylki í Bandaríkjunum.
CDC, Center for Disease Control and Prevention, er ein af fáum stofnunum í veröldinni sem eingöngu hefur það hlutverk að berjast gegn alvarlegustu vágestum mannkyns; vírusum og viðbjóði öðrum sem fólk getur stafað hætta af.
Í miðstöð stofnunarinnar er heilmikið safn þar sem skýrt er í máli og myndum með hvaða hætti stofnunin starfar og hvernig hámenntað starfsfólk þess tæklar alvarlegar og nýjar ógnir við mannkynið.
Er þetta eina safn sinnar tegundar í heiminum og þess virði að heimsækja sé fólk á ferð um þessar slóðir.
Heimasíða þess hér.





