Enn einn daginn er Wow Air að koma á óvart. Nú eru komnar í sölu ferðir þeirra til Kanarí en það er enn einn nýr áfangastaður flugfélagsins í áætlunarflugi.
Beint áætlunarflug félagsins hefst í febrúar og verður flogið einu sinni í viku til að byrja með. Þetta eru góðar fréttir því fáir Íslendingar sem Kanarí hafa heimsótt hafa ekki tekið ástfóstri við.
Að sama skapi verður að undrast ótrúlegan uppgang Wow Air. Kanarí er fimmti nýi áfangastaðurinn sem tilkynnt er um á skömmum tíma en aðrir nýir áfangastaðir flugfélagsins á næsta ári eru Toronto og Montréal í Kanada og Los Angeles og San Francisco í Bandaríkjunum. Það fyrir utan fjölgun áætlunarferða til staða eins og Tenerife.
Allt er þetta hið besta mál. Lengi vel hefur aðeins verið í boði að komast beint til Kanarí með Primera Air eða í pakkaferðum. Aukin samkeppni mun koma ferðaþyrstum til góða.








