Óhætt er fyrir farþega Primera Air frá Róm sem lentu í Keflavík um hálfþrjú-leytið í nótt að setja sig í stellingar. Þeir eiga nefninlega inni tugþúsundir króna vegna tafanna.

Vél Primera Air frá Róm vel rúmlega þrjár klukkustundir á eftir áætlun. Það þýðir bætur. Mynd Rúv

Vél Primera Air frá Róm vel rúmlega þrjár klukkustundir á eftir áætlun. Það þýðir bætur. Mynd Rúv

Vél Primera í þessu flugi, 6F138, átti nefninlega að lenda í Keflavík klukkan 22:50 þann 2. nóvember samkvæmt áætlun. Sú staðreynd að lent var þremur og hálfri klukkustund síðar er hundrað prósent klár ávísun á bætur samkvæmt Evrópureglum.

Ekkert er að finna á vef Primera Air um tafirnar eða orsakir þeirra. Aðrar vélar frá Róm héldu áætlun svo ekki var það veður. Nánast allar aðrar orsakir eru bótaskyldar.

Sem endranær þarf að bera sig eftir björg. Fyrst senda skeyti á Primera Air og fara fram á liðlegheit þar. Oftast nær fæst nei þar á bænum svo þá er málið að hafa samband við Samgöngustofu og leggja inn formlega kvörtun sem stofnunin tekur svo tillit til.

prit