Veðurfræðingar ljúga segir Bogomil Font og víst óhætt að fullyrða að undir það taka margir sem pirra sig á spádómum sem sjaldan verða að veruleika. En hafi þeir rétt fyrir sér í þetta skiptið verður líklega öllu leiðinlegra að leggja leið sína til Bretlands þennan veturinn.

Veturinn 2009/2010 þótti einn sá allra versti í Bretlandi en nú spá menn enn harðari vetri.

Veturinn 2009/2010 þótti einn sá allra versti í Bretlandi en nú spá menn enn harðari vetri.

Ástæðan sú að veðurfræðingar og aðrir þar í landi eru svo brattir að spá einum versta vetri í langan tíma og telja sig vita að landið hverfi í snjó og stórhríð verði regla frekar en undantekning.

Það tengja þeir miklum þunga El Niño fyrirbærisins í Kyrrahafinu þessi misserin en vísindin telja sig geta sannað tengsl milli þeirra og svo aftur mikilla kulda norður í Evrópu. Sem auðvitað þýðir að við hér á Fróni eigum líka von á leiðindum.

Munurinn sá að við erum að mestu vön kafaldsbyljum og snjókomu en Bretar í raun ekki. Og hvað er spennandi að fara úr öskunni í eldinn ef spár fræðinganna ganga eftir.