Í annað skipti í vikunni aflýsir Icelandair flugi að því er fram kemur á vef Keflavíkurflugvallar. Nógu sjaldgæft er að flug sé fellt niður hjá flugfélaginu en tvívegis sömu vikuna er að líkindum einsdæmi.

Önnur aflýsing flugs Icelandair í sömu vikunni. Skjáskot
Ólíkt því sem var fyrr í vikunni þegar engin sérstök tilkynning vegna málsins fannst á vef Icelandair kemur nú fram tilkynning um mikla seinkun flugs FI614 frá New York til Keflavíkur. Vélin sem átti að lenda í Keflavík eldsnemma morguns þann 17. október snertir ekki íslenska jörð fyrr en sólarhring síðar miðað við áætlun.
Merkilegt nokk var öðru flugi á leið til Keflavíkur aflýst þennan daginn. Ekkert varð af flugi Air Greenland frá Nuuk sem lenda átti klukkan þrjú.
Á vef Icelandair er ástæða aflýsingar og sólarhrings tafar sögð vera „vegna tægnilegra örðugleika.“ Svo virðist af orðalaginu sem flugfélagið sé að yngja upp víðar en í flugþjónaliðinu.







