Það er kunnuglegt nafn í öðru sæti á svörtum lista sænska Neytendaráðsins yfir þau fyrirtæki í ferðaþjónustu sem virt hafa að vettugi reglur um endurgreiðslu og eða bætur vegna tafa, seinkana og aflýsinga flugs eða ferða og hafna svo einnig tilmælum Neytendaráðs um að koma til móts við viðskiptavini.

Primera Air á svörtum lista í Svíþjóð. Fyrirtækið hundsar þá sem telja sig eiga inni bætur vegna langra tafa.
Langar þig að geta hvaða fyrirtæki um er að ræða? Þú færð eitt hint: eigandinn er Andri Már Ingólfsson, sonur Ingólfs Guðbrandssonar. Annað hint: fyrirtækið á líka og rekur Heimsferðir.
Hér auðvitað um hið lettneska, áður íslenska, fyrirtæki Primera Air að ræða. Fyrirtækið hefur um árabil gert út frá Svíþjóð og Danmörku og þá helst boðið fólki þar upp á sólarlandaferðir.
Primera Air er annað versta fyrirtækið, verst er flugfélagið Norwegian, varðandi að gera upp við þá viðskiptavini sem ósáttir eru og hafa fengið stuðning frá hinu opinbera Neytendaráði. Alls 24 einstaklingar í tólf tilfellum eiga útistandandi rúma 1,5 milljón króna bætur hjá Andra Má sem ekki hafa fengist greiddar. Tveir þessara einstaklinga hafa þegar höfðað opinbert mál fyrir dómstólum að því er fram kemur á sænska vefnum Vagabond.
Dálítið merkilegt er að þó eingöngu sextán ferðaþjónustufyrirtæki séu á svarta listanum í heild sinni þá finnst þar samt annað íslenskt fyrirtæki. Icelandair harðneitar að greiða bætur fyrir farangur sem skemmdist í umsjón flugfélagsins.
Kannski ekki síður athyglisvert er að lággjaldaflugfélagið Norwegian er versti þrjóturinn gagnvart þeim er telja sig eiga bætur á fyrirtækið. Alls 73 einstaklingar eru að baki 37 tilfellum gegn Norðmönnunum sem þeir síðarnefndu hafa að öllu leyti hundsað.







