Létt gúgl á stærstu fjölmiðlum landsins leiðir í ljós að það er enginn skortur á fregnum þess efnis að Wow Air Skúla Mogensen hafi keypt hátt í milljón farþegaþotur síðustu misserin. Þess vegna kemur á óvart að flug Wow Air til London er framkvæmt af flugfélagi frá Litháen.

Alls kyns erlend flugfélög farin að fljúga fyrir hönd Wow Air þessi dægrin.
Ok, „hátt í milljón“ farþegaþotur eru vitaskuld ýkjur af okkar hálfu. Samt sem áður er mikið af „fréttum“ um kaup Wow Air á glænýjum þotum undanfarin misseri og montstatus herra Mogensen þess efnis hve Airbus hafi nú boðið Wow Air frábær kjör á nýjum vélum.
Alles gut. Við keyptum það allt saman enda vill ritstjórn Fararheill trúa því að menn segi sannleikann en fari ekki með fleipur að gamni sínu. Sérstaklega ekki einn ríkasti Íslendingur samtímans.
En Skúli, ímyndaðu þér undrun okkar þegar við ætluðum að bóka með Wow Air til London í næsta mánuði að flugið, bæði fram og aftur, er framkvæmt af alls óþekktu litháísku flugfélagi!!!
Þú afsakar Skúli en við treystum flugfélögum frá Litháen ekki 100% enda velþekkt að spilling er meiri þar en gerist almennt í Evrópu og lengi vel, og kannski ennþá, hægt að kaupa sig frá erfiðum lögum og reglum með seðlum á réttum stöðum. Í öllu falli er spilling helmingi stærra vandamál í Litháen en á Íslandi og er hún þó nóg hér á klakanum.

Flug Wow Air til London og heim aftur í marsmánuði. Alls ókunnugt flugfélag að sjá um flugin á eldgömlum vélum. Skjáskot
Þess utan, hvers vegna að plata okkur? Við erum jú hugsanlegir viðskiptavinir og við viljum gjarnan vita hvort við erum að fljúga með Wow Air þegar við kaupum flug með Wow Air eða ekki. Sérstaklega nú þegar þú heimtar fleiri þúsund kalla fyrir að taka með sér brauðsneið um borð.
Hvaða batterí er Avion Express og hvers vegna er það að sjá um flugið fyrir ykkur til London? Ræður Wow Air ekki við það á eigin spýtur? Svo er líka sú staðreynd að samkvæmt opinberum gögnum á Avion Express aðeins tvær Airbus A320 vélar og báðar eru að nálgast tvítugsaldurinn. Vélarnar eru því næstum jafn gamlar og vélar Icelandair. Samt stærir Wow Air sig af því að fljúga miklu yngri vélum.
Hvað veldur Skúli? Hvers vegna þessar lygar allar?







