Jæja gott fólk! Nú erum við að fá nasaþefinn af því þegar forstjórar og forráðamenn ætla sér nú aldeilis að hanga á feitum stöðum sínum og gera sig breiða fyrir framan hluthafa. Það gera þeir auðvitað með því að skera niður kostnað og taka sjénsa.

Rúllað af stað þrátt fyrir arfavitlaust veður á áfangastað og með lágmarks eldsneyti um borð? Sannarlega ef þú flýgur fyrir Icelandair en ekki hjá easyJet.

Fyrr í vikunni fluttu fréttamiðlar fregnir þess efnis að áætlunarvél Icelandair hefði óskað eftir nauðlendingarleyfi í Manchester eftir að arfaslæmt veður gerði það næsta ókleift að lenda í borginni eftir nokkrar tilraunir. Eldsneytisforði gaf ekki tilefni til annars en prófa að fljúga til nágrannaborgarinnar Liverpool en þar voru veðurskilyrði engu betri svo snúið var aftur til Manchester og óskað eftir forgangi vegna þess að eldsneyti var á þrotum. Nauðlendingin gekk góðu heilli að óskum en þó ekki fyrir farþega sem misstu sig margir úr hreinni skelfingu í aðfluginu og sumir þeirra þurftu að senda föt sín í hreinsun vegna ælu og pissufýlu.

Icelandair að spara?

Merkilegt nokk leitaði ENGINN íslenskur fjölmiðill skýringa á því hvers vegna vél Icelandair hafði svona lítið eldsneyti meðferðis. Það rétt dugði til Bretlands áður en allt fór „næstum“ í bál og brand.

Daginn eftir að vél Icelandair flaug til Manchester og óskaði eftir forgangi vegna neyðar kom vél breska flugfélagsins easyJet til Keflavíkur en sökum ofsaveðurs gat sú ekki lent þrátt fyrir nokkrar tilraunir. Vélin sú þurfti að snúa til baka til Bretlands og lenti í Glasgow áður en snúið var aftur til London þaðan sem flogið var upphaflega. Ekkert bar á fréttum þess efnis að vél easyJet hefði óskað eftir neyðarleyfi til lendingar vegna eldsneytisskorts á Íslandi. Engin ósk um að lenda á Akureyri, Egilsstöðum eða í Færeyjum vegna tómra eldsneytisgeyma. Lággjaldaflugfélagið hafði, ólíkt Icelandair, nægt eldsneyti fyrir þriggja stunda flug heim aftur „just in case.“

Það er oft svo að „fréttir“ hérlendis segja fólki aðeins af trjánum en ekki af skóginum. Þar hjálpar vitaskuld að Icelandair er einn allra stærsti auglýsandi á markaðnum og þar fátt um fína drætti svo háðir fjölmiðlar birta lágmarks upplýsingar og fréttatilkynningar en sleppa erfiðum eftirá-spurningum sem lesendur kunna að hafa. Það er jú ekki eins og Icelandair auglýsi mikið hjá miðli sem leitar sannleikans.

Fleiri vafasöm dæmi um Icelandair

Annað dæmi um meðvirkni íslenskra fjölmiðla má finna þann 27. janúar 2015 þegar vél Icelandair var sú eina sem lenti á JFK-flugvelli í New York þegar stormur geysaði í borginni og velflest flugfélög settu flug þangað á pásu.

Ekki þó Icelandair. Þangað var flogið hvað sem tautaði, raulaði og veðurfræðingar voru að röfla. Góðu heilli lenti vél flugfélagsins heilu og höldnu og hver einasti fjölmiðill landsins missti sig yfir að víkingarnir frá Íslandi skyldu vera þeir einu sem þorðu að lenda við hrapallegar aðstæður. Þvílík djörfung hjá Íslendingunum!!!

Engum fjölmiðli datt í hug að forvitnast um hvers vegna flugstjóri Icelandair hefði einn, tuga flugstjóra farþegavéla, ákveðið að láta sig hafa lendingu í ofsaveðri í New York. Nei, við sáum aðeins fréttir þess efnis hve íslenskir flugstjórar væru nú mikið betri og færari en þeir erlendu.

Hvað ef sú lending hefði ekki heppnast? Hvað hefðu íslenskir og erlendir fjölmiðlar sagt um flugfélag sem eitt allra í veröldinni reyndi að lenda í ofsaveðri með hörmulegum afleiðingum? Það þarf enga stærðfræðiheila til að vita að fyrirtækið Icelandair heyrði nú sögunni til ef flugstjóranum í þeirri ferð hefði mistekist.

Viðskiptavinir eða hluthafar?

Hvort er meira virði fyrir Icelandair: Viðskiptavinir eða hluthafar?

Ritstjórn Fararheill spyr sig því það er galið að halda af stað til Manchester á Englandi með hálfan tank þegar veðurspá Bretanna varar við óveðri. Meira að segja lággjaldaflugfélagið easyJet hefur meira vit en það. Eru þó fargjöld easyJet almennt helmingur á við það sem viðskiptavinir greiða með Icelandair.

Er komin stíf pressa á forráðamenn að spara skilding alls staðar og alltaf eftir hörmulegan niðurgang Icelandair á hlutabréfamörkuðum að undanförnu? Eða flýgur Icelandair öllum vélum sínum með algjöran lágmarks eldsneytisforða og tekur sjénsinn?

Óskandi væri að við gætum svarað þessu en Icelandair hefur ekki talað við okkur um áraraðir vegna gagnrýni. Það því vonlaust að sækja svör þangað. Jafnvel þó við værum í sambandi við Icelandair þarf enginn að efast um að við fengjum eitthvað bullsvar hvort sem er.

En svona til öryggis viljum ekki einu sinni vita svarið og fljúgum því með öðrum aðilum en Icelandair. Lágmark að til sé eldsneyti til heimferðar ef veður er skítt.