Enn einu sinni virðist ferðaskrifstofan Úrval Útsýn gera lítið úr vandræðum viðskiptavina sinna og jafnvel hundsa þá hundrað prósent. 

Hljómar kunnuglega... Skjáskot

Hljómar kunnuglega… Skjáskot

Við rákumst á þetta hér (sjá skjáskot) á vefnum. Eitt og sér er þetta bara óheppilegt. Alltaf geta jú komið upp vandamál á ferðum sem annars staðar.

En illu heilli fyrir ferðaskrifstofu Pálma Haraldssonar, sem við höfum varað ítrekað við, virðast vandamál poppa upp aftur og aftur. Sem kann að skýra hvers vegna Úrval Útsýn er með lægstu einkunn stærri ferðaskrifstofa á Google.

Líklega er ástæðan þó sú að Pálmi Haraldsson, hinn sami og svindlaði á þjóð sinni árum saman hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, er ekkert að reka ferðaskrifstofu til að bjóða súper þjónustu. Hann er að því til að græða pening og þjónusta við kúnnann kostar pening. 2+2 gera 4 sem sagt.

Ofangreint kemur í kjölfar annars vandamáls sem okkur var bent á hér fyrr í sumar og lesa má um hér. Áhugasamir um Úrval Útsýn geta líka skoðað þetta hér, og þetta hér og þetta.

Einhver ætti kannski að benda eigandanum á nýjustu sálfræðikannanir erlendis. Þær sýna að fyrir hverja eina dapra eða lélega þjónustu sem fólk upplifir þarf tólf skipti jákvæða þjónustu til að sú slæma jafnist út. Reyndar fleiri fyrirtæki á klakanum sem ættu að leggja þá niðurstöðu á minnið.

Jákvætt þó að finna lægsta verð á gistingu erlendis á hótelbókunarvef Fararheill. Stór plús á það 🙂