Ritstjórn Fararheill reyndi nýlega að forvitnast hjá erlendum flugþjónum Primera Air hvenær vélin sem flogið var í það skiptið hefði fengið yfirhalningu frá lettneskum flugyfirvöldum. Enginn vissi svarið.

Öryggiseftirlit með lettneskum flugvélum er takmarkað mjög. Sem þýðir að vélar Primera Air fá sjaldan góða skoðun.
Einhvern veginn ætti það að vera flugstarfsmönnum í lófa lagið að upplýsa farþega um öryggi og eftirlit þegar eftir er leitað. Ekki síst á þessum síðustu og verstu.
En við reyndar vissum að staffið hefði ekki hugmynd þegar við forvitnuðumst. Staffið hefur nefninlega aldrei komið til Lettlands þó vélar Primera Air séu þar skráðar og gerðar út þessa dagana.
Verst kannski að flugeftirlitsstofun Lettlands er lítil og efni ekki til staðar til að skoða reglulega vélar lettnesks flugfélags (Primera Air) sem eingöngu eru notaðar erlendis.
Ekki svo að skilja að vélar Primera Air séu verr þjónustaðar en aðrar. En kannski eru þær það og enginn veit af því.







