Þó margt megi finna að netheimum og þá sérstaklega að allt sem þar er skrifað og birt geymist einhvers staðar og er jafnvel notað til að græða peninga án okkar vitundar er líka margt jákvætt sem netið hefur gefið okkur á móti.

Aftur til fortíðar hjá Lufthansa.
Þar trónir nálægt toppnum, ef ekki á toppnum, sú mergð samanburðarsíða sem við getum nálgast og sparar okkur bæði tíma og fjármuni. Ekki hvað síst hvað viðkemur ferðalögum. Fáir höfðu lyst á eða tíma til að leita uppi hundruð hótela á Kanarí, allra flugferða til London eða heimasíður allra bílaleigustöðva á Alicante áður en slíkir vefir komu til og gerðu vinnuna fyrir okkur.
Nú má sjá á augabragði hvaða flug, bíll eða hótel hentar best anda og veski nema hvoru tveggja sé hvar sem er í heiminum og samkeppnin slík að verð hafa sjaldan eða aldrei verið lægri.
Sem vekur upp spurningar um nýjustu stefnu þýska flugrisans Lufthansa. Flugfélagið, sem einnig á og rekur Germanwings, Brussels Airlines, SWISS og Austrian hefur ákveðið að bæta 2.500 króna aukagjald ofan á allar bókanir fólks gegnum aðra vefi en sinn eigin eftirleiðis. Sem á mannamáli þýðir bara að þú greiðir þá hærra verð fyrir flug með ofangreindum flugfélögum ef þú bókar ferðir annars staðar.
Þetta hefur vakið eftirtekt enda þykir helst mikið farið aftur til fortíðar. Samanburðarsíður auðvelda allt og eru einmitt til þess gerðar að ferðafólk þurfi ekki að valsa fram og aftur milli flugfélaga til að finna hentugt verð eða flugtíma.
Lufthansa er þó ekki að finna upp hjólið hér. Stöku hótel í heiminum bjóða betri kjör á sínum eigin vefsíðum en annars staðar með sama hætti. Þau hins vegar það fá á heimsvísu og kjörin ekki það mikið betri að það borgi sig að eyða tíma í þá leit.
Sama má kannski segja um flug með Lufthansa. Fæstir setja 2.500 kall mikið fyrir sig við kaup á flugi en sem fyrr gerir margt smátt eitt stórt og sé fjögurra manna fjölskylda að þvælast fram og aftur er flesta farið að muna um tuttugu þúsund krónur eða svo.







