Enginn vafi leikur á að þeir flugfarþegar sem lentu í mestum töfum vegna bilana hjá Wow Air fyrr í vikunni eiga rétt á bótum í ofanálag við mat, drykk og aðra þjónustu.

Enginn vafi leikur á að tíu tíma seinkun á flugi skapar bótakröfu. Mynd Wow Air

Enginn vafi leikur á að tíu tíma seinkun á flugi skapar bótakröfu. Mynd Wow Air

Fararheill fékk fyrirspurn vegna tafa véla Wow Air á föstudaginn var, 5. júní, en þá töfðust mörg flug flugfélagsins vegna bilunar og keðjuverkunar í kjölfarið. Mest varð töfin á brottför frá Keflavík til Dublin en flugið sem átti að fara í loftið klukkan sex lagði ekki af stað fyrr en tíu stundum síðar.

Aðeins er fjallað um tafirnar á vef Vísis en þar biður upplýsingafulltrúi Wow Air farþega afsökunar og tekur sérstaklega fram að fólki hafi tvívegis verið boðið upp á máltíðir meðan beðið var.

Gott og blessað. Nema kannski að í Evrópureglum stendur skýrt og skorinort að flugfélagi sé skylt að veita máltíðir og drykki þegar tafir verða á flugi. Það er með öðrum orðum algjört lágmark og er ekki örlæti Wow Air eins og skilja má af orðum upplýsingafulltrúans.

Verra kannski að blaðamanni finnst ekki taka því að benda á að farþegar sem lenda í tíu stunda seinkun vegna vélabilunar eiga inni rúmlega 37 þúsund krónur í bætur frá flugfélaginu samkvæmt Evrópureglum. Sjálfsagt að ganga á eftir því.