Hiti í lofti, hiti í mjöðmum, fín músík, ódýr bar og útsýnið á heimsmælikvarða. Hvernig hljómar þetta hvert einasta kvöld í heila viku fyrir lítið?

Króatía já takk.
Þetta er ein ferð af mörgum sem allnokkur ferðaþjónustufyrirtæki í Króatíu bjóða upp á en í ofangreindu tilfelli er um að ræða frábæra siglingu á glæsilegri snekkju þvert niður eftir öllum helstu ströndum landsins að sumarlagi.
Slíkt óviðjafnanlegt og kannski það allra besta er að ferðunum er skipt niður eftir aldri. Yngra fólkið getur keypt partísiglingu þar sem djammað er út í eitt öll kvöld og þeir sem kjósa afslöppun geta líka tekið sömu siglingu en með aðeins öðrum formerkjum þar sem afslöppun er númer eitt, tvö og þrjú.
Hvoru tveggja fínustu leiðir til að njóta sumarleyfis. Hér skemmir heldur ekki fyrir að verðlag í Króatíu er ennþá nokkuð lægra en almennt vestar í Evrópu þó reyndar það fari hækkandi með síauknum ferðamannastraumi.
Ferð á borð við þá sem við tölum um hér að ofan í heila viku á snekkjunni á myndinni í fínum klefa með sturtu kostar manninn ekki nema kringum 90 til 100 þúsund krónur en reyndar fyrir utan flug á staðinn og heim aftur.
Þar kárnar aðeins gamanið því enginn býður reglulegt beint flug til Króatíu en með millilendingu þarf túr þangað ekki að kosta nein ósköp. Norwegian flýgur hingað frá Osló aðra leið niður í átta þúsund krónur og bæði easyJet og Ryanair fljúga hingað frá Bretlandi fyrir svipaða upphæð. Og ekki er gisting dýr hér um slóðir heldur í neinu samhengi.








