Margt gott sem kemur frá VR þessa dagana. Ekki hvað síst krafan um að Jón, Gulla, Benítez og Ahmed hafi í sig og á hérlendis fyrir botnlausa óskemmtilega vinnu hér og þar. En stundum eru fræðingar VR meira úti á túni en bændur og búalið.

Spekingar VR fá seint háar einkunnir fyrir heila hugsun. Mynd VR
Til marks um það þessi fyrirsögn hér: „VR gerir kröfu í bú Wow Air fyrir hönd starfsmanna og lánar fyrir mánaðarmótum.”
Gott og blessað að ljá þeim starfsmönnum Wow Air sem urðu atvinnulausir fyrr í vikunni peninga til að lifa af næsta mánuð. Reyndar mjög gott og blessað því fá okkar ráða við að fá engin laun sísona fyrirvaralítið.
En að gera ráð fyrir endurgreiðslu úr þrotabúi Wow Air er svona svipað og að búast við endurgreiðslu frá Rauða krossinum vegna taps í spilakössum. Með öðrum orðum: ALLS ENGAR LÍKUR.
Hvers vegna?
Jú, einfaldlega vegna þess að Wow Air átti ekki eina eign þegar flugfélagið fór yfir um. Með áherslu á EKKI EINA EIGN. Flugfélagið leigði allar sínar rellur, leigði allt skrifstofuhúsnæði og búnað og skuldaði hátt í þrjátíu milljarða króna.
Að fræðingar VR láti sér detta í hug að króna fáist úr fátæklegu þrotabúri Wow Air þegar fram í sækir bendir til þess að sérfræðingar VR nú séu sömu sérfræðingar og unnu í bönkunum fyrir Hrunið. Ergo: viti ekki nokkuð um nokkuð.







