Frá Íslandi eru aðeins tvær leiðir í boði langi fólk að sleikja sumarsólina í Alicante eða nágrenni. Beint flug með Primera Air eða beint flug með Wow Air. Úttekt Fararheill leiðir í ljós að flugfélögin skipta bróðurlega með sér bestu tilboðunum.

Primera býður beint flug til Alicante og það veldur umtalsverðri verðlækkun í sumar.
Júlí og ágúst eru þeir mánuðir sem Íslendingar leggja mest undir fót og eðlilega enda flestir sem þá fá sumarfrí. Margir tvinna það saman við sumarfrí á leikskólum og grípa börnin með. Sem þýðir að kostnaður við ferðina hækkar sem því nemur.
Það er því ekkert nema lágmark að gera verðsamanburð milli þessara tveggja aðila og það helst oftar en einu sinni fyrir þá sem vilja til Alicante. Lausleg úttekt okkar hjá Fararheill leiðir í ljós að flugið fram og aftur fæst á lægra verði hjá Primera Air í júlí en Wow Air er vænlegri kostur ef ágúst er valinn.
Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu er komist með Primera Air til og frá Alicante í júlí, minnst vika milli út- og heimferðar, niður í 63.943 krónur á mann. Lægsta verð hjá Wow Air reynist vera 58.144 krónur.
Hvers vegna segjum við að flugið sé ódýrara með Primera þegar allt annað lítur út fyrir að vera raunin? Orsökin sú að nánast enginn flýgur töskulaus til dvalar í Alicante og því óráð annað en taka töskugjaldið með. Tuttugu kílóa Taska fylgir nefninlega með hjá Primera. Með þeim hætti hækkar verð Wow Air upp í 66.142 krónur á mann.
Wow Air er aftur á móti að stúta Primera Air þegar fram í ágúst er komið. Lægsta verð á vef Wow Air kostar manninn 54.694 krónur meðan sami aðili greiðir að lágmarki 72.943 krónur hjá Primera. Jafnvel átta þúsund króna töskukostnaður í viðbót við Wow Air breytir ekki því að lægsta fargjald er mun dýrara hjá Primera Air.
* Úttekt gerð kl. 20:45 hjá báðum aðilum samtímis. Verðbreytingar gerast hratt og vert að hafa það í huga. Einni tösku báðar leiðir bætt við hjá Wow Air.







