Gangi allt að óskum verður það í framtíðinni venja en ekki undantekning að hægt verði að fljúga milli Evrópu og Bandaríkjanna fyrir það sem kalla má klink á góðri íslensku.

Ryanair ætlar í Atlantshafsflugsslaginn.

Ryanair ætlar í Atlantshafsflugsslaginn.

Áhugafólki ætti að vera kunnugt um að Norwegian hefur um skeið boðið flug milli Noregs og Bretlands til Bandaríkjanna á lággjaldaverði en Norðmennirnir urðu fyrstir til að reyna það fyrirkomulag um langt skeið. Löngum hafa spekingar talið erfitt og jafnvel vonlaust að reyna lággjaldamódelið svo langar flugleiðir sem flug yfir Atlantshafið er.

Á því hafa Norsararnir aðeins fengið að kenna. Mikið tap varð á rekstri fyrirtækisins á síðasta ári og Atlantshafsfluginu þar um að kenna. Menn þó borubrattir og sýna engan bilbug að bjóða áfram slíkt flug en sem dæmi um fargjöld má nefna að hægt er að komast frá Noregi til Fort Lauderdale á Flórída undir 20 þúsund krónur aðra leiðina án farangurs.

En róður Norwegian gæti þyngst á næstu árum. Lággjaldaflugfélagið Ryanair ætlar að taka slaginn líka. Það var samþykkt á stjórnarfundi félagsins í vikunni og gera áætlanir ráð fyrir fargjöldum milli London og New York niður í 10 pund eða heilar 2.045 íslenskar krónur miðað við gengi dagsins.

Félagið á þó ekki vélar til verkefnisins lausar svo einhvern tíma tekur að koma þessu á koppinn en forstjóri Ryanair talar um fimm ára áætlun í þessu sambandi.

Jafnvel þó greiða þurfi hærra verð en 2.045 krónur fyrir flug aðra leiðina er þetta jákvæð þróun fyrir þorra almennings. Flugleiðin milli Bandaríkjanna og Evrópu er gullkú margra stóru flugfélaganna og kristaltært að innkoma fleiri en eins lággjaldaflugfélags gæti sett allt þar í uppnám.