Það er ekkert nema gott eitt um það að segja að kneyfa öl á írskum börum í Dublin og fátt nema frábært að segja að það sé hægt að gera fyrir tæpar sautján þúsund krónur fram og aftur.

Flott tilboð hjá Wow Air til Írlands. Mynd Wow Air

Flott tilboð hjá Wow Air til Írlands. Mynd Wow Air

Wow Air hefur dælt út tilboðum til Dublin á Írlandi en beint flug þangað hefst í byrjun sumars. Önnur leiðin á 8.998 krónur og töluvert af sætum í boði þegar við leituðum í júní, júlí og ágúst bæði fram og aftur.

Það hefur nefninlega sett örlítinn blett á sum lægstu flugtilboð Wow Air hingað til að þó önnur leiðin út kosti kannski innan við tíu þúsund krónur eða svo þá hefur kostað öllu meira að komast heim aftur. Stundum tvö- til þrefalt verð til baka.

Svo er ekki nú. Fargjöld fram og aftur finnast alla sumarmánuðina fyrir alls 16.997 krónur án farangurs. Ein 20 kílóa taska ofan á bætir tæpum átta þúsund krónum við pakkann. Þannig kosta flug fram og aftur 24.995 krónur. Það er engu að síður fínt verð til Dublin. Flott hjá Wow Air og hér að neðan geturðu svo tryggt þér lægsta mögulega verð á gistingu í Dublin eða annars staðar í eyjunni grænu. Þar má til dæmis finna fjögurra stjörnu gistingu niður í 4.500 krónur eða svo. Bara brandari.