uvita

Svo þú nennir ekki að gera verðsamanburð? Þitt tap

Það þarf varla að brýna fyrir nokkrum hugsandi manni að gefa sér tíma til að gera verðsamanburð áður en stokkið er til og eins og ein sumarferð bókuð í hvínandi hvelli. Sá hinn sami gæti verið að tapa allt að 50 þúsund krónum.

Í það minnsta ef umræddur aðili ætlar með kvinnu sinni eða karli í tvær vikur til Mallorca þetta sumarið. Þangað bjóða þetta sumarið tvær ferðaskrifstofur pakkaferðir í beinu flugi, Úrval Útsýn og Vita. Og merkilegt nokk, þrátt fyrir að á Mallorca séu hvorki fleiri né færri en 3.500 hótel og gististaðir, eru báðar ferðaskrifstofur að bjóða að hluta til nákvæmlega sömu hótelin. Sem gerir ritstjórn Fararheill lífið létt og verðkönnun enn léttari.

Við bárum saman þrjá ferðapakka til Mallorca á háannatíma um miðjan júlí í tvær vikur hjá báðum ferðaskrifstofum. Fljótt kom í ljós að á vef Vita er sérstakur 20 til 60 þúsund króna afsláttur á völdum ferðum og þar á meðal öllum þremur pökkunum sem við bárum saman. Sem ætti, væri allt eðlilegt, að tryggja auðveldlega að Vita býður lægsta verð. En auðvitað var það ekki svo þó vissulega muni miklu á verði á tilteknum hótelum.

Muninn má sjá hér í töflunni. Þar eru þau þrjú hótel sem báðir aðilar bjóða og tímaramminn 7. júlí – 21. júlí hjá Úrval Útsýn en 9. júlí – 23. júlí hjá Vita. Ítrekað skal, og það umhugsunarefni, að Vita segist vera að slá nokkuð duglega af umræddum ferðum. Engu að síður tekst Úrval Útsýn að bjóða betur í eitt skipti og enginn sérafsláttur veittur. Í hinum tveimur dæmunum er engin spurning hvar skal versla ferðina.

* Premium tvíbýli með öllu inniföldu
** Tvíbýli með morgunverði
*** Tvíbýli superior allt innifalið
**** Verð á vefum ferðaskrifstofanna þann 2. mars 2015