Frá og með júlí 2014 hafa ferðamenn ekki komist lengur leiðar sinnar með strætisvögnum í London nema kaupa sérstök kort. Peningar ónothæfir.

Nú þarf að greiða að lágmarki 2.600 krónur til að komast nokkuð með strætisvögnum London. Mynd Kevin Poh
Peningar virðast víða vera að hverfa í vestrænum heimi á kostnað korta hvers kyns og er miður að mati Fararheill. Það hins vegar virðist vera helsti greiðslumáti fólks og þeir í London fullyrða að 99 prósent notenda strætisvagnanna noti kort eða aðra rafræna gjaldmiðla til að greiða fyrir ferðir sínar.
Það sem er miður fyrir ferðalanga er hins vegar að nú þýðir ekki lengur að kaupa eitt og eitt far eftir hentugleika heldur verður að punga út fyrir svokölluðu Oyster-korti sem svo er hægt að fylla á eftir þörfum. Kortin atarna ein og sér kosta um 600 krónur plús áfyllingar og afar hætt er við að fólk sem heimsæki London aftur og aftur gleymi nú að taka gömlu kortin með í hvert sinn. Þannig tapast ekki aðeins sú inneign sem fólk á mögulega eftir heldur og þarf að kaupa nýtt kort ætli fólk á rúntinn með strætó.
Þess utan eru kannski ekki margir sem þvælast fjórar til fimm ferðir með strætisvögnum um borgina en aðeins þannig er hægt að nota allra ódýrasta kortið upp í topp þó það reyndar velti aðeins á hvenær kortið er notað. Það er nefninlega dýrara að nota strætó í London á tilteknum annatíma en utan. Allra lægsta verð á Oyster korti er 13 pund, 2.600 krónur, en það verð gildir eingöngu sé kortið keypt fyrirfram á netinu. Annars er það dýrara.
Áfyllingar er hægt að fá á lestarstöðvum og í sjálfsölum sem settir hafa verið upp á stöku stöðum. Vandinn gæti legið í að finna þá sjálfsala þegar á þarf að halda.
Galið prógramm að okkar mati og til þess eins gert að græða enn meira á ferðalöngum til London.







