Eins og Fararheill hefur bent á ítrekað eru ýmsar mismunandi leiðir til að komast til Kanaríeyja og dvelja í góðu yfirlæti. En sumir geta ekki hugsað sér annað en fara þangað í beinu flugi og því fórum við á stúfana. Hvað kostar ódýrasta beina flugið og hótel í ofanálag?

Hvað kostar beint flug og dvöl á Tenerife að lágmarki? Mynd Michael Bolognese
Það er ekki eins og við höfum um margt að velja sumarið 2015. Primera Air hefur flogið beint á milli um tíma en það flug leggst af í byrjun apríl ef marka má vef þeirra. Hins vegar er hægt að kaupa flugsæti sérstaklega gegnum ferðaskrifstofuna Heimsferðir fram á sumar og verð þar stöku sinnum lægra en annars staðar. En þá er eftir Wow Air sem býður beint flug einu sinni í viku í allt sumar.
Skoðun á vef Wow Air þegar þetta er skrifað leiðir í ljós að 30 þúsund krónur eru heilt yfir meðalkostnaður aðra leiðina út og svipað til baka eða 60 þúsund alls plús eða mínus klink. Þá er enginn farangur með í för en ein taska báðar leiðir hækkar gjaldið um átta þúsund krónur tæpar.
Samkvæmt úttekt okkar kl. 15:30 þann 28. janúar 2015 er lægsta flug í boði í júnímánuði 66.766 krónur á mann eða 133.532 samtals á par eða hjón. Þar um tveggja vikna túr að ræða frá 13. til 27. júní. Lægsta verð á för í júlí reynist einnig tveggja vikna pakki frá 4. til 18. júlí sem kostar manninn 65.766 krónur eða 131.532 fyrir parið. Lægsta verð í ágúst er hins vegar á vikuferð 22. til 29. ágúst en þá kostar fargjaldið 42.766 á mann eða 85.532 á hjónakorn.
Dæmi 1: Ef við svo brúkum hótelleitarvél Fararheill og reynum að finna gott þriggja stjörnu hótel ofangreinda tímaramma kemur í ljós að í vikurnar tvær í júní, 13.-27. júní er besta verð að finna á Santa Barbara Golf & Ocean Club eins og sjá má hér til hliðar. Tvær vikur þar í stúdíóíbúð fæst niður í 92.617 krónur. Pakkinn þannig í heild sinni, flug plús hótelið, kostar því parið í þessu tilfelli alls 226.149 krónur eða rúmar 113 þúsund á mann . Sem er allnokkru lægra verð en ferðaskrifstofurnar eru að bjóða fyrir tveggja vikna ferðir þó flugið sé hér dýrt.

Dæmi 2: Við beitum sömu aðferð við að finna hótel yfir þær tvær vikur í júlí sem um ræðir, 4. til 18., og leitum aftur að þriggja stjörnu gistingu því við erum fyrst og fremst að reyna að ná kostnaði niður. Annars geta menn líka leitað að fjögurra og fimm stjörnu gistingu ef fólk vill meira og betra. Í þetta sinn fáum við upp Apartments Pez Azul í Puerto de la Cruz. Brandaraverð þar en hótelið fær samt sjö í einkunn svo ekki er það ýkja slæmt. Ekkert innifalið samt. Kostnaður í vikurnar tvær fyrir flug og hótel fyrir tvo samtals 182.083 krónur eða 91 þúsund rúmar á mann.

Dæmi 3: er aðeins vikudvöl í lok ágúst. Ekki aðeins munar miklu á fluginu heldur og er auðvitað lægra verð fyrir vikudvöl eða tveimur vikum. Við finnum 22. til 29. ágúst laust herbergi á þriggja stjörnu íbúðahóteli í Puerta de la Cruz. Það hótel, Apartamentos Florida Plaza, fær fína einkunn af tíu mögulegum hjá notendum og verðið er auðvitað bara annar brandari. Flugið plús vikan hér á þessum stað kostar parið alls 136.083 krónur eða 68.941 krónur á mann.
Af þessu má ráða að það er ekkert hræðilega erfitt að búa til eigin ferð sem kostar töluvert minna en margar ferðir hjá ferðaskrifstofunum. Mínusinn kannski sá að hér þarf að greiða aukalega fyrir farangur, enginn matur innifalinn nema eftir því sé óskað sérstaklega og kannski líka að ekki eru endilega ódýrustu hótelin nálægt þeim stöðum sem Íslendingar aðrir halda sig. Það er stórt atriði hjá mörgum.
Um að gera að þreifa sig áfram en pantið fyrr en ella því flugfargjöldin hækka nánast daglega. Svo taka sér tíma á bókunarvélinni. Hún hefur ekki verið valin besta hótelleitarvél heims tvisvar í röð fyrir ekki neitt. Svo er sumarfríið á Tenerife afgreitt.







