Þó almennt séð séu velflestar skipulagðar utanlandsferðir héðan keyptar meira og minna frá erlendum ferðaheildsölum eru alltaf inn á milli aðilar sem sýna fagmennsku og framtakssemi og hanna eigin ferðir. Sem undantekningarlítið eru töluvert skemmtilegri en hinar.

Heimurinn er stór og við lítil. Um að gera að skoða sem mest ef tök eru á.

Heimurinn er stór og við lítil. Um að gera að skoða sem mest ef tök eru á.

Fararheill gluggaði í ferðaúrvalið hjá nokkrum ferðaskrifstofum og við rákumst á nokkrar ferðir sem eru kjörnar fyrir þá sem ekki ætla einu sinni enn að eyða fríi á spænskri sólarströndu. Þá sem kjósa að fara lengra, upplifa eitthvað nýtt og koma reynslunni ríkari heim aftur.

Neðangreindar ferðir falla kannski ekki undir að vera sérstaklega ódýrar en eru víst ábyggilega þess virði og gleymast líklega mun síður en ferð númer átta til Benidorm eða Mallorca.

[vc_button title=“KOSTA RÍKA“ href=“http://www.transatlantic.is/costarica/ferdalysing“ color=“wpb_button“ size=“btn-large“ icon=“wpb_heart“ target=“_self“ el_position=“first“]

Hin akureyrska ferðaskrifstofa Trans-Atlantik heldur áfram að koma á óvart með skraddarsaumuðum ferðapökkum sínum lengst út í heim. Tæplega tveggja vikna ferð þeirra til Kosta Ríka í september er sannarlega til að fá vatn í munn. Staldrað við í hinni litríku höfuðborg San Jose áður en við taka kostulegar skoðunarferðir vítt og breitt um landið sem sannarlega státar af ýmsu forvitnilegu. Auðvitað er áð við eina af fimm stjörnu ströndum landsins og slökun í kjölfarið.

[vc_button title=“BANDARÍKIN“ href=“http://www.baendaferdir.is/baendaferdir/vor/vor-4-new-orleans-graceland-nashville“ color=“wpb_button“ size=“btn-large“ icon=“wpb_heart“ target=“_blank“]

Ferðaúrval til Bandaríkjanna hefur oftar en ekki verið afar takmarkað og ekki svo langt hægt að þvælast ef fólk treystir sér ekki til á eigin spýtur. Nú er þó hægt að skoða hluta Suðurríkja landsins með Bændaferðum sem bjóða þrettán daga ferð lok apríl. Lent í Orlando en þaðan haldið til átta annarra borga þvers og kruss. Þar á meðal New Orleans, Nashville og Savannah sem eru heimsóknar virði einar og sér. Ekki skemmir væntanlega veðurfar heldur neitt ef landinn fílar hita og sól.

[vc_button title=“ALBANÍA“ href=“http://vita.is/ferd/albania-soguferd“ color=“wpb_button“ size=“btn-large“ icon=“wpb_heart“ target=“_blank“ el_position=“first“]

Ferðaskrifstofan Vita býður tíu daga ferðir með leiðsögn til Albaníu í október. Það er líklega eitt lokaðasta ríki Evrópu og að hluta til ennþá þó enginn sé einræðisherrann lengur. Albanía er kjaftfull af sögu og minjum ekki síður en Grikkland til suðurs eða Svartfjallaland til norðurs. Skoðunarferðir daglega til hinna ýmsu staða sem eiga ríka sögu og gist á ágætum hótelum og oft með kvöldverð innifalinn.

[vc_button title=“TÆLAND“ href=“http://www.oriental.is/ferdir/BootcampAdrenalin-17/“ color=“wpb_button“ size=“btn-large“ icon=“wpb_heart“ target=“_blank“]

Yfirleitt ferðast fólk til hinna fallegu eyja Tælands fyrst og fremst til afslöppunar og nóg er af slíkum ferðum. En hjá Oriental gera menn þetta aðeins öðruvísi í nóvember en þá verður boðið upp á sérferð í samvinnu við Bootcamp til Krabi. Þó eflaust gefist tækifæri til slökunar er þó áherslan hér eilítið öðruvísi og á hreyfingu hvers kyns. Kajaksiglingar, hjólreiðar, göngur og hitt og þetta sportlegt.