Hvort það er tilviljun eða snör viðbrögð skal ósagt látið en þremur tímum eftir að Icelandair bauð tilboðsfargjöld í dag stökk Wow Air fram með nokkur tilboðsverð líka. Og mikið til sömu borga.

Icelandair að bjóða lægri fargjöld þessa stundina til Köben og London en Wow Air
Þar um að ræða ferðir til London, Köben og Dublin allt niður í 9.999 krónur sem er þó ekki rétt verð því ofan á það vantar eins og venjulega bókunargjald. Lágmarksprís á ferðum Wow Air því í raun 10.998 krónur aðra leið.
Bætum ofan á það einni tösku eða svo sem kostar að minnsta kosti 3.999 og við fáum út 14.997 krónur aðra leið með sköttum, gjöldum og einni tösku.
Það er hvorki meira né minna en DÝRARA en flug með Icelandair á sama tíma miðað við 14.900 króna fargjald þeirra. Hér verður Skúli og félagar að gera mun betur. Í það minnsta ef kalla á Wow Air lággjaldaflugfélag.







